Aðeins fuglanet gáfu sig á kvíunum

Fóðurpramminn Muninn við eldiskvíar Laxa ehf. í Reyðarfirði. Pramminn liggur …
Fóðurpramminn Muninn við eldiskvíar Laxa ehf. í Reyðarfirði. Pramminn liggur nú á botni fjarðarins. mbl.is/Helgi Bjarnason

Verið var að útbúa báta Laxa ehf. með fóðurbyssum í gær og byrjar fóðrun laxa í kvíum á Gripalda-svæðinu í sunnanverðum Reyðarfirði í dag. Lax var síðast fóðraður þar á föstudag, en fóðurpramminn Muninn sökk í illviðri aðfaranótt sunnudags. Fuglanet á kvíum eru löskuð eftir veðrið og verður skipt um þau á næstu dögum þar sem þess er þörf. Kvíarnar sjálfar og nótapokar urðu ekki fyrir tjóni og er búnaðurinn hannaður til að standast álag sem þetta.

Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa, segir að í gær hafi veður verið stillt í Reyðarfirði og aðstæður góðar fyrir kafara frá Köfunarþjónutsunni. Jens Garðar segir að ákvörðun um björgunaraðgerðir verði teknar þegar mat Köfunarþjónustunnar, tryggingafélags og fleiri liggi fyrir og þá með hvaða hætti og hvenær prammanum verður lyft.

Allar aðgerðir eru í samráði við Fjarðabyggðarhafnir, en svæði innan fjarðar telst vera á hafnarsvæði samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins. Jens Garðar segir að ekki hafi orðið vart við olíu í sjónum þar sem pramminn sökk.

Laxar ehf. eru nú með 32 eldiskvíar í Reyðarfirði og eru 16 þeirra við Gripalda, en laxinn þar verður ekki kominn í sláturstærð fyrr en með haustinu.

Slátrun hófst hins vegar í gær á Djúpavogi á laxi úr kvíum út af Bjargi í norðanverðum firðinum eins og áætlanir gerðu ráð fyrir. Flutti brunnbátur um 120 tonn af fiski úr Reyðarfirði til Djúpavogs.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,82 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,13 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 713 kg
Þorskur 250 kg
Skarkoli 44 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 1.033 kg
25.4.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.734 kg
Þorskur 97 kg
Skarkoli 51 kg
Samtals 2.882 kg
25.4.24 Fengsæll HU 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.294 kg
Þorskur 141 kg
Skarkoli 24 kg
Rauðmagi 7 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 1.472 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,82 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,13 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Elfa HU 191 Grásleppunet
Grásleppa 713 kg
Þorskur 250 kg
Skarkoli 44 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 1.033 kg
25.4.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.734 kg
Þorskur 97 kg
Skarkoli 51 kg
Samtals 2.882 kg
25.4.24 Fengsæll HU 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.294 kg
Þorskur 141 kg
Skarkoli 24 kg
Rauðmagi 7 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 1.472 kg

Skoða allar landanir »