Til loðnumælinga þegar hafís og veður leyfa

Hoffell SU á loðnuveiðum, en loðnubrestur hefur verið tvö síðustu …
Hoffell SU á loðnuveiðum, en loðnubrestur hefur verið tvö síðustu ár. mbl.is/Börkur Kjartansson

Umtalsvert minna mældist af loðnu í leiðangri fimm skipa í síðustu viku en í desember og er ljóst að ekki verður gefin út ráðgjöf um auknar veiðar sem byggist á niðurstöðum þessa leiðangurs, en endanlegt stofnmat liggur ekki fyrir.

Í loðnuleiðangri í byrjun desember mældust um 487,4 þúsund tonn af hrygningarloðnu og gaf Hafrannsóknastofnun í kjölfarið út ráðgjöf upp á 22 þúsund tonn.

Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150 þúsund tonnum að teknu tilliti til afráns, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Birkir Bárðarson fiskifræðingur segir að í leiðangri fimm skipa í síðustu viku hafi hafís komið í veg fyrir mælingar á loðnu úti af Vestfjörðum. Rannsóknaskipin hafi komist yfir minna svæði nú en í desember, en þá var loðna við ísröndina fyrir vestan.

Hann segir að vel verði fylgst með því hvort hafísinn gefi eftir á næstunni og eins hvort veður verði til mælinga. Þegar færi gefist fari rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson til mælinga, hugsanlega strax eftir helgi. Þá segir hann að þátttaka veiðiskipa sé einnig möguleg, en það verði skoðað í framhaldinu. Vel verði fylgst með því sem kemur undan ísnum og eins göngunni sem nú fer austur með Norðurlandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »