Nýr Einar Guðnason til Suðureyrar

Norðureyri ehf. á Suðureyri hefur fengið afhentan nýjan Einar Guðnason …
Norðureyri ehf. á Suðureyri hefur fengið afhentan nýjan Einar Guðnason ÍS 303 frá Trefjum. Ljósmynd/Trefjar ehf.

Útgerðarfélagið Norðureyri ehf. á Suðureyri fékk í síðustu viku afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 beitningavélarbát frá Trefjum í Hafnarfirði. Hann leysir af hólmi eldri bát útgerðarinnar sem strandaði við Gölt síðla árs 2019.

Báturinn hefur hlotið nafnið Einar Guðnason ÍS 303, sama nafn og sá sem strandaði, og er 15 metrar að lengd og mælist 30 brúttótonn, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Trefjum. Þar segir að skipstjórar á Einari Guðnasyni, sem útbúinn er til línuveiða, séu þeir Bjarni Bjarnason og Friðrik Ólafsson. Þá hefur báturinn þegar hafið veiðar og þær sagðar ganga vel.

Báturinn er útbúinn til lengri útiveru ef þarf og aðbúnaður um borð fyrir áhöfn í takt við það. Stór borðsalur er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk fullkominnar eldunaraðstöðu með eldavél, bakarofni, örbylgjuofn og ísskáp.

Rými er fyrir allt að 43stk 460lítra kör í lest.  Millidekk er lokað með aðgreindu dráttarrými.  Í bátnum er upphituð stakkageymsla. 

Vel búinn

Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan V158 480kW tengd frístandandi ZF 360 V-gír. Rafstöð og glussarafall er af gerðinni Scam frá Ásafli ehf. og er báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Raymarine frá Sónar ehf.

Þá er Einar Guðnason búinn vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins og er beitningavél, rekkakerfi og línuspil frá Mustad í Noregi. Búnaður á dekki er frá Stálorku, en Ísvél og forkælir frá Kælingu ehf. Í bátnum er einnig ARG250 stöðugleikabúnaður frá Ásafli ehf.

Lífbátar og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.3.24 558,73 kr/kg
Þorskur, slægður 18.3.24 503,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.3.24 332,79 kr/kg
Ýsa, slægð 18.3.24 217,26 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.3.24 221,12 kr/kg
Ufsi, slægður 18.3.24 222,80 kr/kg
Gullkarfi 18.3.24 234,41 kr/kg
Litli karfi 18.3.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 18.3.24 208,37 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.3.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 7.380 kg
Samtals 7.380 kg
18.3.24 Quantus PD 379 (MWSH6) GB 999 Flotvarpa
Kolmunni 1.746.888 kg
Samtals 1.746.888 kg
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 10.868 kg
Ýsa 818 kg
Langa 137 kg
Keila 127 kg
Steinbítur 87 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.041 kg
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.803 kg
Ýsa 146 kg
Steinbítur 54 kg
Samtals 4.003 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.3.24 558,73 kr/kg
Þorskur, slægður 18.3.24 503,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.3.24 332,79 kr/kg
Ýsa, slægð 18.3.24 217,26 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.3.24 221,12 kr/kg
Ufsi, slægður 18.3.24 222,80 kr/kg
Gullkarfi 18.3.24 234,41 kr/kg
Litli karfi 18.3.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 18.3.24 208,37 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.3.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt
Þorskur 7.380 kg
Samtals 7.380 kg
18.3.24 Quantus PD 379 (MWSH6) GB 999 Flotvarpa
Kolmunni 1.746.888 kg
Samtals 1.746.888 kg
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 10.868 kg
Ýsa 818 kg
Langa 137 kg
Keila 127 kg
Steinbítur 87 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.041 kg
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.803 kg
Ýsa 146 kg
Steinbítur 54 kg
Samtals 4.003 kg

Skoða allar landanir »