Ísfisktogarinn Bergey VE er kominn til heimahafnar í Vestmannaeyjum með fullfermi að sex daga veiðiferð lokinni. Veiðiferðin gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig þrátt fyrir góða veiði en Bergey VE fékk í aðra skrúfuna undir lok túrsins.
„Jú, við erum á landleið með góðan afla en því miður fengum við í aðra skrúfuna í lokaholinu. Það er fúlt að fá í skrúfuna en nú er svo sannarlega gott að hafa tvær vélar og tvær skrúfur. Við siglum á sjö til átta mílna ferð á annarri skrúfunni og nálgumst Eyjarnar hratt og örugglega.
Í þessum túr vorum við mest að fiska í Skaftárdýpi og Skeiðarárdýpi og fengum þar blandaðan afla. Aflinn er mest ýsa en einnig dálítið af þorski, ufsa, lýsu og karfa. Veðrið í þessari veiðiferð var hundleiðinlegt allan tímann, samfelld norðaustan bræla. Yfirleitt voru þetta 20-25 metrar en í fyrradag dúraði svolítið, þá voru bara 15. Þegar veðrið lét sem verst þurftum við að flýja upp að landinu,“ er haft eftir Ragnari á heimasíðu Síldarvinnslunnar hf.
Systurskipið Vestmannaey VE kom svo til löndunar í Vestmannaeyjum í nótt með fullfermi. Aflinn er blandaður og fékkst í Breiðamerkurdýpinu.
Að sögn Egils Guðna Guðnasonar skipstjóra var það veðrið sem réði algerlega för í túrnum. „Þetta var erfitt. Við þurftum sífellt að vera að sæta lagi og urðum jafnvel að flýja upp í fjöru. Þetta var leiðindaveður allan túrinn og það getur verið þreytandi,“ segir Egill Guðni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,81 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 192,14 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,46 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,35 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.264 kg |
Þorskur | 164 kg |
Skarkoli | 115 kg |
Rauðmagi | 20 kg |
Samtals | 1.563 kg |
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 408 kg |
Karfi | 74 kg |
Ufsi | 35 kg |
Samtals | 517 kg |
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.092 kg |
Skarkoli | 590 kg |
Þorskur | 502 kg |
Ýsa | 97 kg |
Steinbítur | 6 kg |
Sandkoli | 3 kg |
Samtals | 2.290 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,81 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 192,14 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,46 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,35 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.264 kg |
Þorskur | 164 kg |
Skarkoli | 115 kg |
Rauðmagi | 20 kg |
Samtals | 1.563 kg |
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 408 kg |
Karfi | 74 kg |
Ufsi | 35 kg |
Samtals | 517 kg |
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.092 kg |
Skarkoli | 590 kg |
Þorskur | 502 kg |
Ýsa | 97 kg |
Steinbítur | 6 kg |
Sandkoli | 3 kg |
Samtals | 2.290 kg |