Níu fastir um borð eftir að smit kom upp

Fjölnir GK er kyrrsettur við bryggjuna í Grindavík.
Fjölnir GK er kyrrsettur við bryggjuna í Grindavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Línubáturinn Fjölnir GK hefur verið kyrrsettur við bryggju í Grindavík eftir að einn úr áhöfninni fékk jákvæða svörun úr sýnatöku fyrir Covid-19. Níu skipverjar eru um borð og þar af eru þrír í einangrun inni í klefum.

Þetta staðfestir skipstjóri Fjölnis, Aðalsteinn R. Friðþjófsson, í samtali við mbl.is. Fréttablaðið greindi fyrst frá.

Skipverjinn var nýlega kominn heim frá útlöndum og fór því í tvær sýnatökur. Sú fyrsta reyndist neikvæð en sú síðari sýndi jákvæða svörun. Hann mætti þó til starfa áður en hann fékk niðurstöðu úr síðari skimun og rauf þar með sóttkví. Skipið átti að sigla úr höfn í kvöld.

Aðalsteinn segir að hann hafi fengið niðurstöður úr síðari skimun á nánast sama augnabliki og hann mætti um borð. Þá var hann þó búinn að heilsa þremur vinnufélögum sínum og eru þeir nú í einangrun í skipinu. Hinir sex úr áhöfninni sem voru mættir um borð þegar niðurstaðan barst eru í sóttkví um borð. Skipverjinn fer í mótefnamælingu í fyrramálið.

„Við bíðum bara niðurstöðu um hvort þetta sé gamalt smit eða ekki hjá honum. Gildin eru víst há hjá honum þannig að það eru miklar líkur á því að þetta sé gamalt smit. Hann á að mæta strax klukkan átta í fyrramálið og þeir telja að það taki 1-2 klukkutíma að fá niðurstöðu frá því hann mætir. Þá vitum við meira,“ segir Aðalsteinn, sem er sjálfur í fríi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 439,94 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 210,06 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 117,89 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 169,31 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,82 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 1.558 kg
Samtals 1.558 kg
24.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 899 kg
Þorskur 88 kg
Ufsi 16 kg
Samtals 1.003 kg
24.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 290 kg
Þorskur 45 kg
Skarkoli 33 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 371 kg
24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 439,94 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 210,06 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 117,89 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 169,31 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,82 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 1.558 kg
Samtals 1.558 kg
24.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 899 kg
Þorskur 88 kg
Ufsi 16 kg
Samtals 1.003 kg
24.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 290 kg
Þorskur 45 kg
Skarkoli 33 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 371 kg
24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg

Skoða allar landanir »