Gréta María Grétarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá útgerðarfyrirtækinu Brimi hf., að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Þar segir að Gréta María, sem lauk meistaragráðu í verkfræði frá Háskóla Íslands 2008, hafi víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, en hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra hjá Krónunni þar til í vor og áður stöðu fjármálastjóra hjá Festi. Þá hlaut hún Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins og Frjálsrar verslunar árið 2019 fyrir áherslu á umhverfis- og lýðheilsumál í störfum sínum hjá Krónunni.
Gréta María býr einnig að reynslu úr bankakerfinu og upplýsingatæknigeiranum. Hún hefur setið í fjölmörgum stjórnum og einnig sinnt kennslu við verkfræðideild Háskóla Íslands og við MPM-nám í verkefnastjórn.
„Það er ánægjulegt að fá Grétu Maríu til liðs við okkur. Reynsla hennar og áherslur munu hjálpa okkur að efla starfsemi okkar og festa Brim í sessi sem leiðandi sjávarútvegsfyrirtæki“ er haft eftir Guðmundi Kristjánssyni forstjóra Brims í tilkynningunni en hann var nýlega endurráðinn til félagsins.
„Ég er mjög ánægð að vera komin til Brims og hlakka til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu á einu af öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Brim hefur verið leiðandi í umhverfismálum og við munum halda áfram að starfa í sátt við umhverfið og samfélagið. Við munum einnig leggja okkar af mörkum við að styðja við verðmætasköpun í bláa hagkerfinu með öflugri rannsóknar og þróunarvinnu,“ segir Gréta María.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |