Hrollaugsmenn hafa trú á Arthuri

Höfn í Hornafirði.
Höfn í Hornafirði. mbl.is/Ómar Óskarsson

Forsvarsmenn smábátafélagsins Hrollaugs á Höfn í Hornafirði rituðu Arthuri Bogasyni, formanni Landssambands smábátaeigenda, bréf á dögunum þar sem þeir lýsa yfir trú sinni á Arthuri sem formanni LS.

Í bréfinu sem hefur nú verið birt á síðu félagsins segir að fundað hafi verið um mögulega inngöngu Hrollaugs í LS að nýju. Ekki kemur fram í bréfinu hvort Hrollaugur hyggist sækjast aftur eftir aðild í LS en þó segir að flestir hafi verið jákvæðir fyrir möguleikanum. 

Smábátafélagið Hrollaugur sagði sig úr LS árið 2018, m.a. vegna óánægju með baráttuleysi fyrir stöðu smábátasjómanna í kjölfar breytinga á strandveiðifyrirkomulaginu. 

Grútmáttlaust skriffinnskufélag

„Allflestir tóku nokkuð vel undir þá hugmynd en eru samt tvístígandi því það LS sem við yfirgáfum á sínum tíma var orðið grútmáttlaust skriffinskufélag sem sannarlega fylgdi ekki sinni eigin lýðræðislega kjörnu stefnu og hvað þá að raunverulegur baráttuandi til handa smábátum hafi svifið þar yfir vötnunum,“ segir í bréfi Hrollaugs til Arthurs. Undir bréfið ritar Vigfús Ásbjörnsson, formaður Hrollaugs. 

Í bréfinu eru útlistaðar hugmyndir um hvernig LS geti náð þeim styrk og áheyrn sem Hrollaugur telur að félagið eigi að hafa. „Leiftursóknin sem LS þarf að standa fyrir verður að vera svo öflug að enginn fái við hana ráðið sem vilja okkur smábátasjómenn feiga,“ segir í bréfinu.

Í samtali við 200 mílur segir Arthur Bogason að hann hafi verið langt kominn með að svara bréfi Hrollaugs, þegar það var birt á netinu, á þá leið að hann hvetji Hrollaugsmenn til þess að ganga aftur í LS enda séu kraftar smábátasjómanna betur nýttir sameinaðir.

Bréfið má í heild sinni lesa hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »