Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu jarðeigenda í innanverðu Ísafjarðardjúpi um ógildingu ákvörðunar Matvælastofnunar um að veita Arctic Sea Farm hf. rekstrarleyfi fyrir kynslóðaskiptu sjókvíaeldi á regnbogasilungi með 5.300 tonna hámarkslífmassa við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi.
Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar og Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Kröfum Náttúruverndarsamtaka Íslands, náttúruverndarfélagsins Laxinn lifi, Veiðifélags Laxár á Ásum, svo og Akurholts ehf. og Geiteyrar ehf., eigenda Haffjarðarár var vísað frá á grundvelli þess að nefndin taldi umrædda aðila ekki hafa lögvarða hagsmuni í málinu.
Héldu kærendur því meðal annars fram að ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 2014 um það hvort fyrirhugað sjókvíaeldi þyrfti að fara í umhverfismat tengdist annarri framkvæmd en Matvælastofnun tók afstöðu til. Á þetta féllst úrskurðarnefndin ekki og sagði ótvírætt að um sömu framkvæmd væri að ræða.
Þá telur Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála útgáfu rekstrarleyfisins ekki í andstöðu við markmið laga um fiskeldi.