Aflaverðmæti 148 milljarðar í fyrra

Afli dreginn um borð í Engey.
Afli dreginn um borð í Engey. Ljósmynd/Þröstur Njálsson

Heildaraflaverðmæti fyrstu sölu landaðs afla var rúmlega 148,3 milljarðar króna árið 2020 sem er 2% aukning frá árinu á undan. Heildaraflamagn íslenskra skipa var 1.021 þúsund tonn sem er 3% minni afli en árið 2019.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Afli botnfisktegunda var um 488 þúsund tonn á síðasta ári sem er 4% minna en árið 2019. Aflaverðmæti botnfisks jókst örlítið frá fyrra ári og var rúmir 113 milljarðar króna.

Magn uppsjávarafla var tæp 530 þúsund tonn en var 534 þúsund tonn árið 2019 eða 1% meira. Verðmæti uppsjávarafla jókst hins vegar um 10%, úr tæpum 21,6 milljörðum króna árið 2019 í 23,8 milljarða árið 2020.

Flatfiskafli var tæplega 23 þúsund tonn sem er 4% meira en árið 2019 og verðmæti flatfisks jókst úr 9,3 milljörðum króna í 9,8 milljarða. Skelfiskafli dróst saman um 61% og aflaverðmætið varð rúmir 1,2 milljarðar króna.

600 þúsund tonn af sjávarafurðum

Rúm 600 þúsund tonn af sjávarafurðum voru flutt út árið 2020, samkvæmt bráðabirgðatölum, sem er 2,5% minna en árið áður. Verðmæti þess útflutnings var um 270 milljarðar króna sem er 3,7% aukning frá árinu 2019. Þar af var útflutningsverðmæti þorskafurða tæpir 132 milljarðar króna sem er 12,2% aukning frá árinu áður.

Af útfluttum þorski voru tæp 52 þúsund tonn fryst, 47 þúsund tonn ísuð og rúm 25 þúsund tonn söltuð. Útflutningsverðmæti var hæst vegna ísaðs þorsks eða tæpir 55 milljarðar króna. Þar er á ferðinni 13,7% aukning frá árinu 2019.

Af öðrum útfluttum afurðum voru flutt út rúm 86 þúsund tonn af makríl að útflutningsverðmæti 18 milljarðar króna. Útflutt ýsa nam tæpum 24 þúsund tonnum að andvirði 19,7 milljarðar. Útflutningsverðmæti karfa var tæplega 13 milljarðar króna og ufsa rúmir 11 milljarðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »