„Stór áfangi fyrir sjófarendur og sjómenn“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir dóms­málaráðherra og Georg Lárus­son, for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unn­ar, kynntu …
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir dóms­málaráðherra og Georg Lárus­son, for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unn­ar, kynntu í dag áform um kaup á ný­legu varðskipi. Georg kveðst fagna ákvörðuninni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki hefur verið ákveðið hvaða skipi ríkisstjórnin hyggst festa kaup á fyrir Landhelgisgæsluna, en sérstaklega er til skoðunar þjónustuskip úr olíuiðnaðinum.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, kveðst í samtali við 200 mílur hæstánægður með ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að ganga til kaupa á nýlegu skipi sem ætlað er gegna hlutverki varðskips hjá Landhelgisgæslunni. „Þetta er mikill gleðidagur, þetta er stór viðburður,“ segir hann.

Áformin voru kynnt á blaðamannafundi um borð í varðskipinu Þór í dag.

„Okkar fyrstu viðbrögð eru fyrst og fremst þakklæti til stjórnvalda að ráðast í þessa framkvæmd. Þetta mun bæta stöðu Landhelgisgæslunnar verulega, auka björgunargetuna og getu til að styðja við almannavarnir og hinar dreifðu byggðir landsins. Ásamt því sem það er mikill og stór áfangi fyrir sjófarendur og sjómenn,“ útskýrir Georg.

Mörg til sölu

Fram kom í viðtali við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra í dag að Landhelgisgæslan telji hægt að kaupa nýlegt skip fyrir 1 til 1,5 milljarða króna. Beðinn um að skýra þetta mat svarar Georg: „Þetta er allt á frumstigi, en það sem við erum fyrst og fremst að horfa til eru þjónustuskip úr olíuiðnaðinum. Það stendur þannig á þar að það hefur orðið mikill samdráttur í olíuframleiðslu og nokkuð mörg svona skip eru til sölu. Við teljum að markaðsaðstæður séu góðar núna.“

Frá blaðamannafundinum um borð í Þór í dag.
Frá blaðamannafundinum um borð í Þór í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þá segir Georg skip af þessum toga henta vel til landhelgisgæslustarfa. „Við höfum reynsluna frá Noregi, norska strandgæslan hefur tvö svona skip í sinni þjónustu. Þetta eru skip sem hafa mikla dráttargetu og stjórnhæfni.“

Ekki er gert ráð fyrir að miklar breytingar þurfi að gera á þjónustuskipi af þessum toga til að það geti sinnt verkefnum varðskipa. „Það fer allt eftir ástandi skipsins, en við teljum að það þurfi ekki neinar teljandi breytingar. Skipin eru flest búin svipað og varðskipið Þór. Við erum að stíla inn á það þetta verði sem allra minnst, en auðvitað verður farið í eðlilegt viðhald, málun og svo framvegis,“ fullyrðir Georg.

Tekur vel í Freyju

Áslaug Arna kynnti í dag hugmynd sína að nafni á varðskipinu, Freyja, en það er undir forstjóra Landhelgisgæslunnar komið að taka ákvörðun um nafngiftina. Hefðbundið er að nöfn varðskipanna séu karlmannsnöfn úr norrænni goðafræði en loftför stofnunarinnar bera kvenmannsnöfn.

Inntur álits á hugmynd dómsmálaráðherra kveðst Georg mjög ánægður með tillöguna. „Við erum mjög hrifin af þessari hugmynd. Sér í lagi vegna þess að þetta skip kemur öðruvísi til en hin skipin okkar, sem hafa verið byggð sérstaklega fyrir okkur.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »