„Þetta er rosalega flott skip“

Nýr Börkur fór í prufusiglingu á fimmtudag í síðustu viku. …
Nýr Börkur fór í prufusiglingu á fimmtudag í síðustu viku. Fulltrúar Síldarvinnslunnar eru mjög ánægðir með skipið. Ljósmynd/Karl Jóhann Birgisson

Mikil gleði var meðal fulltrúa Síldarvinnslunnar þegar þeir á dögunum fengu að vera með er nýr Börkur fór í prufutúr. Skipið er í smíðum hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku. „Það voru allir í skýjunum,“ er haft eftir Grétari Erni Sigfinnssyni, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, á vef fyrirtækisins.

Ásamt Grétari voru skipstjórinn Hjörvar Hjálmarsson, stýrimaðurinn Leifur Þormóðsson, Karl Jóhann Birgisson og Hörður Erlendsson vélstjóri með í förinni. „Þetta er rosalega flott skip og það besta sem við höfum séð. Öll vinnubrögð við smíðina eru frábær og ekkert til sparað. Það er afar gott að vinna með Dönunum og Karl Jóhann og Hörður gegna mikilvægu hlutverki við smíðina og eru í reglubundnu sambandi við okkur heima,“ segir Grétar.

Mínútu og átta sekúndur í 15 mílur

Ekki fara fulltrúarnir sparlega með stóryrðin. „Ég held að þessi skip, Börkur og systurskipið Vilhelm Þorsteinsson, séu flottustu skip sem komið hafa til Íslands,“ fullyrðir Hjörvar skipstjóri. „Öll smíði á þeim er einstaklega vönduð og þau eru hlaðin búnaði í ríkari mæli en menn hafa kynnst. Í prufutúrnum voru aðalvélarnar tvær álagsprófaðar og meðal annars dælt sjó í allar lestar og í kælikerfi. Um borð voru 28 manns og hver og einn hafði sínu hlutverki að gegna. Skipið fór í 15,5 mílur á annarri vélinni og í 18,8 á báðum. Þarna er um að ræða yfir 9.000 hestöfl og krafturinn er ótrúlegur. Það tók til dæmis einungis eina mínútu og átta sekúndur fyrir skipið að fara úr 5 mílum í 15.“

„Við njótum góðs af samvinnu við Samherjamenn en skip þeirra, Vilhelm Þorsteinsson, verður tilbúið á undan Berki. Mér skilst að Vilhelm verði sennilega afhentur í kringum 20. mars en Börkur gæti verið tilbúinn í lok apríl eða byrjun maí. Þessi skipasmíðastöð er fyrirmyndarfyrirtæki og ef þarf að breyta einhverju eða bæta við þá er það ekkert mál. Skipið virkar alveg svakalega stórt. Það er 90,2 metrar að lengd og 16,7 metrar að breidd. Lestarrýmið er yfir 3.500 rúmmetrar þannig að það getur borið um 3.400 tonn að landi. Þetta er svo sannarlega Stóri-Börkur. Vonandi náum við einum kolmunnatúr fyrir sjómannadag til þess að læra á bátinn. Þetta er virkilega spennandi allt saman,“ segir hann.

Sex vikur að mála

Karl Jóhann hefur frá byrjun október fylgst með smíðunum í Skagen og hafa vélstjórarnir, Jóhann Pétur Gíslason og Hörður, verið með honum til skiptis. Karl Jóhann kveðst ánægður með framgöngu verksins. „Nú á til dæmis að fara að byrja að mála skipið að innan og í það verk fer 46 manna hópur. Gert er ráð fyrir að málningarvinnan taki sex vikur. Það er vel að öllum verkum staðið og auðvitað skiptir máli fyrir skipasmíðastöðina að skipið klárist sem fyrst.

Eins og ég hef áður sagt njótum við þess að framkvæmdir við systurskipið Vilhelm Þorsteinsson eru á undan þannig að ekkert kemur á óvart við framkvæmdir í Berki. Ég geri ráð fyrir að verða hér í Skagen allt til enda og mínu verki hér mun ljúka við afhendingu skipsins,“ útskýrir Karl Jóhann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðmundur Arnar EA 102 Grásleppunet
Grásleppa 811 kg
Þorskur 429 kg
Skarkoli 36 kg
Steinbítur 15 kg
Samtals 1.291 kg
19.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.840 kg
Þorskur 148 kg
Skarkoli 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.008 kg
19.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 126 kg
Samtals 126 kg
19.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 213 kg
Samtals 213 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðmundur Arnar EA 102 Grásleppunet
Grásleppa 811 kg
Þorskur 429 kg
Skarkoli 36 kg
Steinbítur 15 kg
Samtals 1.291 kg
19.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.840 kg
Þorskur 148 kg
Skarkoli 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.008 kg
19.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 126 kg
Samtals 126 kg
19.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 213 kg
Samtals 213 kg

Skoða allar landanir »