Eru allir tíu með brasilíska afbrigðið

Súrálsskipið Taurus Confidence.
Súrálsskipið Taurus Confidence.

Raðgreiningu sýna sem voru tekin í súrálsskipinu Taurus Confidence við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði um helgina er lokið. Allir skipverjarnir tíu sem reyndust smitaðir eru með brasilískt afbrigði kórónuveirunnar.

„Læknir og hjúkrunarfræðingur fóru um borð í súrálsskip við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði í gær. Mátu þau ástand og líðan áhafnarmeðlima sem greindust með Covid við komu skipsins til Reyðarfjarðar laugardaginn 20. mars síðastliðinn. Enginn skipverja reyndist alvarlega veikur. Sjö af tíu sem greindust með Covid við komu skipsins höfðu einkenni veirunnar en þrír ekki. Í gær voru tekin frekari sýni af þeim níu sem ekki voru með Covid við komuna. Niðurstöður berast væntanlega seint í dag eða kvöld,“ segir í tilkynningu frá aðgerðastjórn lögreglunnar á Austurlandi.  

Landhelgisgæslan skoðar upplýsingagjöf

„Við komu skipsins á laugardag fór hafnsögumaður um borð sem og læknir, hjúkrunarfræðingur og lögreglumaður. Allir fylgdu þeir ýtrustu sóttvörnum í samræmi við leiðbeiningar og búnir hlífðarfatnaði. Hafnsögumaður fór í sóttkví í kjölfarið þar sem hann hefur ekki fengið bólusetningu vegna Covid-19. Aðrir er um borð fóru eru bólusettir og því ekki í sóttkví.“

Í dag munu læknir og hjúkrunarfræðingur fara aftur um borð til að meta ástand og líðan skipverja og veita aðhlynningu eftir þörfum.  

„Fréttir hafa borist af því að upplýsingar um veikindi skipverja um borð hafi ekki borist yfirvöldum í samræmi við venju og verklag. Sá þáttur er nú til skoðunar hjá Landhelgisgæslu og Samgöngustofu,“ segir í fyrrnefndri tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »