Erlendir sjóðir frjáfesta í íslensku siglingakerfi

Stofnendur Hefring og fulltrúar Nýsköpunarsjóðs. Frá Hefring þeir Karl Birgir …
Stofnendur Hefring og fulltrúar Nýsköpunarsjóðs. Frá Hefring þeir Karl Birgir Björnsson framkvæmdastjóri, Björn Jónsson og Magnúsi Þór Jónsson. Frá Nýsköpunarsjóði þau Huld Magnúsdóttir framkvæmdastjóri og Örn Viðar Skúlason fjárfestingastjóri. Ljósmynd/Aðsend

Tveir erlendir fjárfestingasjóðir koma að hlutafjáraukningu í sprotafyrirtækinu Hefring ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.

Hefring ehf. var stofnað árið 2018 af þeim Magnúsi Þór Jónssyni, Birni Jónssyni og Karli Birgi Björnssyni. Fyrirtækið vinnur að þróun á Hefring Marine siglingakerfinu sem gengur í megin atriðum út á að verja báta, skip og áhafnir þeirra fyrir höggum og hættulegum hreyfingum sem verða til vegna samspils siglingar, sjólags, hraða, stefnu og veðurs.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur leitt hlutafjáraukningu sprotafyrirtækisins en nýsköpunarsjóðurinn kom fyrst að fjármögnun Hefring árið 2019 og eignaðist þannig fjórðungshlut í félaginu.

Upphæð hlutafjáraukningarinnar er ekki gefin upp en Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring segir í samtali við 200 mílur að fjárfestingin sé næg til þess að fyrirtækið geti með þægilegu móti ráðist í þróun og framleiðslu næsta eina og hálfa til tvö árin. 

Með stærri fyrirtækjum í flutningaskipum

Erlendur fjárfestingasjóðirnir sem nú taka þátt í hlutafjáraukningu Hefring eru eru Innoport, sem er þýskur sjóður, og hins vegar TechNexus, sem er bandarískur sjóður. 

Innoport er í eigu þýska fyrirtækisins Schulte Group sem er eitt það stærsta í heiminum í útgerð og rekstri flutningaskipa sem og skipa og báta fyrir annarskonar atvinnustarfsemi. Hjá Schulte Group starfa um 20 þúsund starfsmenn um allan heim en fyrirtækið á eða gerir út tæplega sjö hundruð skip af ýmsum gerðum. “ segir í tilkynningu frá Nýsköpunarsjóði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,37 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,61 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Viðey RE 50 Botnvarpa
Ýsa 51.134 kg
Karfi 26.235 kg
Þorskur 18.388 kg
Ufsi 18.309 kg
Samtals 114.066 kg
24.4.24 Vigur SF 80 Lína
Steinbítur 483 kg
Þorskur 372 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 938 kg
24.4.24 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 188 kg
Ýsa 130 kg
Steinbítur 112 kg
Keila 15 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 1 kg
Samtals 451 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,37 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,61 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,98 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Viðey RE 50 Botnvarpa
Ýsa 51.134 kg
Karfi 26.235 kg
Þorskur 18.388 kg
Ufsi 18.309 kg
Samtals 114.066 kg
24.4.24 Vigur SF 80 Lína
Steinbítur 483 kg
Þorskur 372 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 938 kg
24.4.24 Háey I ÞH 295 Lína
Þorskur 188 kg
Ýsa 130 kg
Steinbítur 112 kg
Keila 15 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 1 kg
Samtals 451 kg

Skoða allar landanir »