Kaupa vinnslu á Spáni fyrir 2,2 milljarða

Bjarni Ármannsson forstjóri Iceland Seafood International hf. Fyrirtækið hefur lýst …
Bjarni Ármannsson forstjóri Iceland Seafood International hf. Fyrirtækið hefur lýst áhuga á að festa kaup á vinnslu á Spáni, en fyrirtækið er nú þegar fyrirferðamikið á þeim markaði. Ljósmynd/Iceland Seafood International

Iceland Seafood International hf. (ISI) stefnir að því að festa kaup á 80% hlut í spænska laxvinnslufyrirtækinu Ahumados Dominguez, en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð á mánudag. Ætla má að kaupverðið nemi um 14,96 milljónum evra sem er jafnvirði um 2,2 milljarða íslenskra króna.

Fram kemur í tilkynningu ISI til kauphallarinnar að velta Ahumandos Dominguez á árinu 2020 nam 19,3 miljónum evra sem er jafnvirði 2,8 milljarða íslenskra króna. Þá nam hagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði 1,7 milljónir evra, jafnvirði 252 milljóna króna. Kaupverð félagsins er sagt vera 8,8 sinnum hagnað fyrir skatta og fjármagnsliði og stendur til að greiða fyrir félagið með samruna skulda og hlutafé.

Þá segir að Pedro Mestanza, framkvæmdastjóri spænska félagsins, muni fara með 20% eignarhlut og halda áfram starfi sínu fyrir spænska félagið verði af kaupunum.

„Ahumados Dominguez er smásölufyrirtæki með sterkt vörumerki fyrir reyktan lax sem er þekkt meðal neytenda á Spáni. Ahumados Dominguez vörumerkið er þekkt fyrir mikil gæði. Fyrirhuguð kaup munu styrkja stöðu Iceland Seafood á spænska smásölumarkaðnum og skapa tækifæri til að nýta sér þann vettvang sem Ahumados Dominguez hefur til að selja hágæða þorskafurðir frá Íslandi. Með yfirtökunni mun Iceland Seafood koma inn í laxageirann á Spáni en lax og lýsa er helsta tegund á spænska markaðnum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »