140 þúsund tonn af makríl til íslenskra skipa

Samkvæmt reglugerð verður íslenskum skipum úthlutað veiðiheimildir sem nema 16,5% …
Samkvæmt reglugerð verður íslenskum skipum úthlutað veiðiheimildir sem nema 16,5% af ráðgjöf ICES. mbl.is/Árni Sæberg

Heimilaður makrílafli íslenskra skipa verður 140.627 tonn í ár, en Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis. Um er að ræða 16,5% af þeim heildarafla sem samþykktur hefur verið í Norðaustur-Atlanthshafsfiskveiðinefndinni (NEAFC), að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.

Enn hefur ekki verið fundin lausn í makríldeilunni og er ljóst að gefnar verða út veiðiheimildir langt umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) sem hefur lagt til að ekki verði veitt umfram 852 þúsund tonn.

Sex af sjö strandríkjum hafa tilkynnt hvað þau hyggjast veiða og nemur það rúmlega 1041,5 þúsund tonnum, eða tæpum 190 þúsund tonnum umfram ráðgjöf. Þá hyggjast Norðmenn veiða 298 þúsund tonn, Rússar rúm 120 þúsund tonn, Bretar um 222 þúsund tonn, Evrópusambandið 200 þúsund tonn, Grænlendingar 60 þúsund tonn og Íslendingar tæplega 141 þúsund tonn. Færeyingar hafa enn ekki gefið út hvað þeir hyggjast veiða af makríl í sumar.

Í ljósi stöðunnar er fátt sem bendir til þess að lausn á deilunni sé í sjónmáli en ákvörðun Norðmanna um 298 þúsund tonna veiðar hefur þegar hlotið töluverða gagnrýni.

Uppfært 02.06.21 klukkan 09:00. Áður stóð að ESB hefði gefið út makrílkvóta sem nam rúm 100 þúsund tonn, en rétt er að um er að ræða 200 þúsund tonn. Fréttin hefur verið leiðrétt með tilliti til þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,71 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,04 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Mars BA 74 Handfæri
Þorskur 829 kg
Samtals 829 kg
24.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 1.213 kg
Þorskur 68 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.340 kg
24.4.24 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 2.543 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 2.576 kg
24.4.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.716 kg
Þorskur 157 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.877 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,71 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,04 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Mars BA 74 Handfæri
Þorskur 829 kg
Samtals 829 kg
24.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 1.213 kg
Þorskur 68 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.340 kg
24.4.24 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 2.543 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 2.576 kg
24.4.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.716 kg
Þorskur 157 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.877 kg

Skoða allar landanir »