Sjómenn ekki farið varhluta af faraldrinum

Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna.
Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna, skrifar í blað 200 mílna í tilefni af sjómannadeginum:

Enn einn sjómannadagurinn er runninn upp og á ný hvílir skuggi heimsfaraldurs yfir deginum með þeim afleiðingum að allri skipulagðri skemmtidagskrá hefur verið aflýst í ár í höfuðborginni og væntanlega munu hátíðahöld vítt og breitt í sjávarplássum fara fram með varkárari hætti en almenn hefð er fyrir. Það eina sem stefnt er á að haft verði í heiðri í Reykjavík er hefðbundin minningarathöfn við Öldurnar, minnisvarða drukknaðra sjómanna við Fossvogskirkju, og árleg sjómannamessa í Dómkirkjunni. Auk þessa munu fimm eldri sjómenn verða heiðraðir í nýjum húsakynnum dvalarheimilis Hrafnistu við Sléttuveg í Reykjavík. Góðar líkur eru blessunarlega á að með þrautseigju og samstilltu átaki þjóðarinnar muni von bráðar sjá fyrir endann á þessum vágesti sem haft hefur gríðarleg áhrif á tilveru okkar allra allt of lengi.

Covid-19 og sjómenn

Óhætt er að segja að sjómennirnir okkar hafi ekki farið varhluta af faraldrinum. Allir landsmenn hafa fært fórnir til forðast smit og afleiðingar þess og í raun hafa sjómenn í mörgum tilfellum þurft að leggja meira á sig en margar aðrar stéttir þar sem víða voru settar strangar varúðarreglur í þeim tilgangi að gera allt sem hægt væri að gera til að halda sjávarútvegi og siglingum gangandi gegnum þetta langvinna Covid-ferli.

Samtök sjómanna og útvegsmanna tóku saman höndum og útbjuggu leiðbeiningar fyrir áhafnir skipa um hvernig bregðast skyldi við ef upp kæmi grunur um smit um borð. Þessar leiðbeiningar voru settar um borð í flotann og fullyrða má að það hafi haft veruleg áhrif á hversu vel hefur í stórum dráttum tekist til varðandi smitvarnir í flotanum, þótt til séu einstakar undantekningar frá því.

Segja má að þar sem mesta öryggis er gætt hafi menn nánast verið í viðvarandi sóttkví, s.s. á sumum ísfisktogurum, þar sem áhafnir einangra sig algjörlega um borð í skipum sínum í þrjár vikur, fara ekki í land meðan landanir standa yfir og hafa yfir höfuð ekki samskipti við neina utanaðkomandi þann tíma. Að afloknum þremur vikum fara fram áhafnaskipti og þeim sem fara í frí er gert að sýna ýtrustu varkárni, fara í sýnatöku og fá neikvæða niðurstöðu úr henni, áður en haldið er í næsta úthald. Með þessu móti hefur til þessa tekist að koma í veg fyrir smit um borð. Vonandi fer að styttast í að ekki verði lengur þörf fyrir þetta fyrirkomulag.

Kjarasamningar fiskimanna

Um þessar mundir standa yfir kjarasamningsviðræður milli samtaka sjómanna og útvegsmanna en Félag skipstjórnarmanna vísaði þeim til ríkissáttasemjara þann 18. febrúar þar sem framgangur viðræðna hafði fram að vísun ekki skilað árangri. Haldnir hafa verið fundir reglulega undanfarnar vikur undir stjórn sáttasemjara auk funda í smærri hópum án aðkomu hans til að reyna að nálgast samkomulag um ákveðin ágreiningsmál sem í framhaldinu eru rædd á næsta sáttafundi.

Óhætt er að segja að í ákveðnum þáttum virðast vera að skapast forsendur til að ná saman sem er mjög jákvætt og vonandi verður lagt kapp á að komast að samkomulagi sem fyrst. Þar ber hæst krafa sjómanna um að njóta sömu lífeyrisréttinda og aðrar stéttir launafólks þ.e.a.s. að mótframlag vinnuveitenda hækki úr 8% í 11,5%. Á móti kemur að í gegnum tíðina hafa mál þróast með þeim hætti að hjá LÍÚ og síðan áfram með SFS hefur kröfugerð þeirra í aðdraganda undanfarinna kjarasamninga vaxið og dafnað upp í það að verða mun viðameiri en kröfur sjómannasamtakanna þannig að segja má að „hefð“ sé orðin fyrir því að skera niður og fækka kröfum áður en lengra er haldið. Hvað sem því líður þá er affarasælast með hækkandi sól að hafa bjartsýni og jákvæðni að leiðarljósi.

Óska sjómönnum, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegs sjómannadags og velfarnaðar í því sem fram undan er.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 50.964 kg
Ýsa 14.544 kg
Samtals 65.508 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 50.964 kg
Ýsa 14.544 kg
Samtals 65.508 kg

Skoða allar landanir »