Fiskveiðar skilvirkari með öflun og miðlun gagna

„Útkoman er virðiskeðja þar sem útgerðir geta sótt í hafið …
„Útkoman er virðiskeðja þar sem útgerðir geta sótt í hafið eins og þær væru að sækja vöru inn á lager,“ segir Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Trackwell, um þá möguleika sem skapast þegar gögnum er safnað og miðlað í rauntíma á milli skips og lands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Starfsemi Trackwell hefur verið í örum vexti á undanförum árum og í dag eru lausnir fyrirtækisins í notkun víða um heim. Er þess skemmst að minnast þegar búnaður Trackwell var, um miðjan síðasta áratug, tekinn til notkunar við fiskveiðieftirlit á um 100 milljóna ferkílómetra hafsvæði í Kyrrahafinu sem 40 ríki hafa lögsögu yfir.

Jón Ingi Björnsson er framkvæmdastjóri Trackwell og segir hann að dag hvern taki kerfi Trackwell við skráningargögnum frá um 15.000 skipum um allan heim, þar af um 9.000 skipum í Kyrrahafinu. „Hér á Íslandi berast okkur í kringum þrjár milljónir staðsetningartilkynninga á dag á hverjum sólarhring.“

Gögn leika æ stærra hlutverk í að auka skilvirkni veiða …
Gögn leika æ stærra hlutverk í að auka skilvirkni veiða og hámarka virði sjávarafurða. mbl.is/Árni Sæberg

Hægt að nota hvar í heiminum sem er

Skipta má starfsemi Trackwell í tvo hluta: flotastýringu og forðastýringu. Undir forðastýringu heyra lausnirnar Tímon og Floti sem eru í notkun hjá fjölda íslenskra fyrirtækja. Er Tímon hannaður til að halda utan um verk-, vakta- og tímaskráningu starfsmanna en Floti til að hafa eftirlit með bíla- og tækjaflotanum. Undir flotastýringu heyra Trackwell VMS og Hafsýn þar sem fyrrnefnda lausnin er sniðin að fiskveiðieftirliti fyrir ríki og stofnanir en sú síðarnefnda ætluð skipstjórnarfólki og útgerðum til að skrá veiðar og vinnslu með skilvirkum og sjálfvirkum hætti.

Upphaf Trackwell má rekja til þróunar á sjálfvirku tilkynningaskyldunni, sem Trackwell rekur enn fyrir hönd Vaktstöðvar siglinga, en síðan þá hafa nýjar vörur bæst við með reglulegu millibili. Lausnir Trackwell gegna mikilvægu hlutverki á stórum hafsvæðum og eru t.d. notaðar til að vakta veiðar og ferðir skipa í N-Atlantshafinu, Kyrrahafi, Miðjarðarhafinu og hluta Indlandshafs. Hjá Trackwell starfa 36 manns og er öll þróun og þjónusta hér á landi.

„Það sem hefur hjálpað okkur að ná þessari miklu útbreiðslu er að hugbúnaður okkar er hýstur í tölvuskýjakerfum fyrirtækja á borð við Amazon og Microsoft og hægt að nýta lausnirnar hvar í heiminum sem er án þess að við þurfum að hafa starfsfólk eða vélbúnað á staðnum. Aðgangur notenda og öll þjónusta okkar er síðan á netinu,“ útskýrir Jón Ingi.

Eins og að sækja vörur inn á lager

Áhugavert er að skoða hverju söfnun og miðlun fiskveiðiupplýsinga breytir fyrir útgerðarfélög. Jón Ingi bendir á að nota megi vörur Trackwell til að mæla ýmsa þætti fiskveiða. „Á þann hátt verða veiðar fyrsti hluti af virðiskeðju þess matvælaframleiðslufyrirtækis sem útgerðarfélagið er.

Skipin geta sent í land – í rauntíma – upplýsingar um t.d. samsetningu aflans og hvaða vörur er verið að framleiða um borð. Framleiðslustjórar og sölustjórar í landi taka við þessum upplýsingum og nota til að taka ákvarðanir um hvernig má hámarka virði vörunnar,“ segir Jón Ingi og bendir á hvernig tæknin opni fyrir þann möguleika að láta markaði stýra veiðunum frekar en að veiða fyrst og svo reyna eftir fremsta megni að fá gott verð fyrir vöruna á mörkuðum. „Útkoman er virðiskeðja þar sem útgerðir geta sótt í hafið eins og þær væru að sækja vöru inn á lager, til að koma á móts við eftirspurn hverju sinni.“

Bara á Íslandsmiðum vinnur hugbúnaður Trackwell úr um þremur milljónum …
Bara á Íslandsmiðum vinnur hugbúnaður Trackwell úr um þremur milljónum staðsetningarhnita á dag. Mynd/Trackwell

Gögnin hjálpa líka til við að gera veiðarnar skilvirkari. „Það má t.d. keyra saman gögn um olíueyðslu skipa og hve mikið veiddist í hverju togi, hver togslóðin var og hvaða veiðarfæri voru notuð. Með því að vinna úr þannig gögnum má meðal annars bæta rekjanleika, minnka sótspor fisksins, og auðveldara verður fyrir skipstjórnarmenn að átta sig á hvernig má ná hámarksárangri við veiðarnar. Um leið er verið að lágmarka umhverfisáhrifin en sjálfbærni og sótspor vega æ þyngra í þessari grein.“

Þá hafa sumar útgerðir notað rekjanleg gögn sem verða til við veiðarnar til að gera fiskinn að áhugaverðari vöru fyrir neytandann. „Það eru einkum smábátaútgerðirnar sem hafa þreifað sig áfram með þessa þjónustu með það fyrir augum að geta fengið hærra verð fyrir fiskinn. Fylgja þá upplýsingarnar fiskinum alla leið til neytandans sem getur t.d. notað snjallsímaforrit til að sjá hvar og hvenær fiskurinn var veiddur.“

Fiskveiðieftirlit verður mun skilvirkara

Þegar kemur að fiskveiðistjórnun hjálpa kerfi Trackwell við að koma t.d. auga á skip við ólöglegar veiðar. Er hægt að tengja staðsetningargögn Trackwell við gervihnattamyndir og nýta gervigreind til að staðsetja skip sem stinga í stúf. „Með þessu verkfæri er hægt að gera fiskveiðieftirlit skilvirkara. Í stað þess að senda skip og flugvélar til eftirlits af handahófi er hægt að senda þau þangað sem mestar líkur eru taldar á að brot séu að eiga sér stað,“ útskýrir Jón Ingi.

„Sams konar greiningu má líka nota til að koma auga á t.d. skip sem eru að landa í önnur skip úti á rúmsjó, og hægt að nýta gögnin til að greina hegðun skipa til að koma auga á hættumerki.“

Samsett mynd af notendaviðmóti Trackwell. Gögnin eru gerð auðskiljanleg.
Samsett mynd af notendaviðmóti Trackwell. Gögnin eru gerð auðskiljanleg. Mynd/Trackwell
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »