Gísli, Baldur og Quentin aflahæstir

Hugrún DA, áður Rán SH, var aflahæsti báturinn á grásleppuvertíðinni.
Hugrún DA, áður Rán SH, var aflahæsti báturinn á grásleppuvertíðinni. Ljósmynd/Arnbjörn Eiríksson

Aflahæsti báturinn á grásleppuvertíðinni hingað til er Hugrún DA-1 með 115 tonn. Báturinn er gerður út frá Skarðsstöð á Skarðsströnd í Dölum og segir í umfjöllun Skessuhorns að það séu feðgarnir Gísli Baldursson og Baldur Þórir Gíslason sem ásamt Quentin Monner skipa áhöfn Hugrúnar.

Fátt bendir til þess að nokkur annar bátur muni ná jafn miklum afla áður en tímabilinu lýkur endanlega en vertíðin hefur verið „fengsæl“ að því er segir á vef Landssambands smábátaeigenda.

Fram kemur að alls hafi 172 bátar stundað grásleppuveiðar á vertíðinni og nemur afli þeirra 7.349 tonnum þegar tveir bátar eru enn að veiðum. Á vertíðinni hefur því afli hvers báts að meðaltali verið 43 tonn, sem sagður er sá mesti í sögu grásleppuveiða og samsvarar þetta yfir 80 tunnum af hrognum.

Fúsi var með mesta afla á hverja löndun að meðaltali.
Fúsi var með mesta afla á hverja löndun að meðaltali.

Þá hafa landanir á vertíðinni verið 2.742 sem gefur 2,7 tonna meðaltal. Fúsi SH var með hæsta meðaltalið 7,3 tonn eða 51,4 tonn í sjö róðrum.

Fimm bátar náðu yfir 100 tonnum og voru það Hugrún DA með 115,1 tonn, næst Sigurey ST með 110,3 tonn, síðan Hlökk ST með 107,2 tonn, svo Aþena ÞH með 103,4 tonn og er fimmti báturinn Rán SH með 100 tonn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 276 kg
Karfi 12 kg
Samtals 288 kg
24.4.24 Rán SH 307 Handfæri
Þorskur 1.826 kg
Ufsi 664 kg
Karfi 5 kg
Samtals 2.495 kg
24.4.24 Þytur MB 10 Handfæri
Ufsi 40 kg
Samtals 40 kg
24.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 90 kg
Karfi 2 kg
Samtals 92 kg
24.4.24 Sælaug MB 12 Handfæri
Ufsi 54 kg
Samtals 54 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 276 kg
Karfi 12 kg
Samtals 288 kg
24.4.24 Rán SH 307 Handfæri
Þorskur 1.826 kg
Ufsi 664 kg
Karfi 5 kg
Samtals 2.495 kg
24.4.24 Þytur MB 10 Handfæri
Ufsi 40 kg
Samtals 40 kg
24.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 90 kg
Karfi 2 kg
Samtals 92 kg
24.4.24 Sælaug MB 12 Handfæri
Ufsi 54 kg
Samtals 54 kg

Skoða allar landanir »