Sækja á erlenda markaði með sjófatnað

„Það eru tiltölulega fáir um hituna á sjóklæðamarkaði en samkeppnin …
„Það eru tiltölulega fáir um hituna á sjóklæðamarkaði en samkeppnin engu að síður hörð, og kemur sér tvímælalaust vel að hafa þann gæðastimpil að vera íslenskur framleiðandi,“ segir Þorsteinn Finnbogason markaðsstjóri Voot. mbl.is/Árni Sæberg

Þökk sé nánu samstarfi við íslenska sjómenn hefur Voot þróað sjófatnað sem þykir bera af. Mikil samlegðaráhrif fólust í því þegar Hampiðjan kom inn í eigendahóp fyrirtækisins og greiddi Voot leið út í heim.

Starfsemi Voot hefur þróast hratt undanfarinn áratug og félagið , sem áður var smáfyrirtæki í Grindavík, er núna byrjað að skjóta rótum á erlendum mörkuðum samhliða því að þjónusta sjávarútvegsfyrirtæki hringinn í kringum Ísland.

Reksturinn hófst árið 2012 og framan af snerist starfsemin fyrst og fremst um sölu á beitu. „Upp úr 2014 tókum við að bæta við vöruúrvalið og gátum skaffað meira eða minna allt sem viðskiptavinir okkar þurftu til að stunda króka- og línuveiðar,“ útskýrir Þorsteinn Finnbogason, markaðsstjóri Voot. „Um miðjan síðasta áratug varð svo úr að bjóða útgerðum upp á að kaupa á einum stað flestar þær vörur sem þarf fyrir fiskveiðitúra. Með þessari þjónustu spöruðum við viðskiptavinum okkar mikið umstang og tíma sem annars hefði þurft að verja í að safna saman hinum ýmsu rekstrarvörum,“ segir Þorsteinn.

Sjómenn leiða þróun sjófatnaðarins

Næsti kafli hófst árið 2016 þegar Voot tók að þróa og selja eigin sjófatnað. Þessi nýja viðbót við vöruúrvalið hitti í mark hjá sjómönnum enda hönnunin og efnisvalið afrakstur náins samstarfs við íslenska sjómenn. „Lykillinn að árangrinum var að við áttum í daglegum samskiptum við þá sem nota fatnaðinn, fengum sjómennina til að prófa fatnaðinn með okkur og fengum frá þeim fjölda góðra ábendinga um ýmis smáatriði sem mætti bæta hér og þar. Þessu höfum við haldið áfram allt til þessa dags,“ segir Þorsteinn.

Þorsteinn segir gæði og eiginleika vörunnar mega þakka nánu samráði …
Þorsteinn segir gæði og eiginleika vörunnar mega þakka nánu samráði við fólkið sem notar fatnaðinn bæði í landi og á hafi úti. Voot Ljósmynd/Voot

Áfram hélt Voot að stækka og bæta við bæði nýjum vörum og viðskiptavinum. Þorsteinn segir hreinlætisvörur og hreinsiefni nýjustu viðbótina, og að Voot státi m.a. af einstaklega góðu framboði af einnota vörum. Kaupendahópurinn er ekki lengur bara útgerðarmenn heldur fiskvinnslur, kjötvinnslur, mötuneyti og hvers kyns fyrirtæki sem vantar rekstrarvöru fyrir matvælaiðnað.

Þorsteinn bætir við að þrátt fyrir ört vaxandi vöruframboð leggi fyrirtækið vitaskuld áfram ríka áherslu á beitusölu og veiðarfæri. „Við erum m.a. umboðsaðilar Mustad króka á Íslandi og bjóðum upp á hágæða beitu fyrir línu- og krókaveiðar.“

Sjómenn erlendis þekkja íslensku gæðin

Árangur Voot fór ekki fram hjá stjórnendum Hampiðjunnar sem ákváðu árið 2018 að veiðarfæraframleiðandinn framsækni skyldi kaupa hlut í rekstri Voot. Þorsteinn segir starfsemi Hampiðjunnar og Voot fara vel saman enda kunni kaupendur veiðarfæra að meta að geta fengið allar mögulegar útgerðarvörur á einum stað. Í gegnum sölu veiðarfæra hefur Voot fundið nýja kaupendur, og í gegnum gæðavörur Voot hefur Hampiðjan eignast nýja viðskiptavini.

„Það var síðan í gegnum samstarfið við Hampiðjuna að Voot tókst smám saman að sækja á fleiri markaðssvæði erlendis. Eins og lesendur þekkja er Hampiðjan alþjóðlegt stórfyrirtæki með starfsstöðvar í sjávarplássum frá Alaska í vestri til Nýja-Sjálands í austri. „Í dag selur Voot vörur á fimm stöðum á Grænlandi, víðs vegar í Noregi og Danmörku og á 20 stöðum í Kanada og Bandaríkjunum,“ útskýrir Þorsteinn en á þessum markaðssvæðum er sjófatnaður Voot seldur undir vörumerkinu Mar Wear.

Reffilegur sjómaður í fatnaði frá Voot.
Reffilegur sjómaður í fatnaði frá Voot. Ljósmynd/Voot

Reyndist góð spurn eftir þjónustu Voot utan Íslands og hefur sjófatnaðurinn gert mikla lukku. Þorsteinn segir greinilegt að fyrirtækið njóti góðs af því að á meðal sjómanna erlendis fari það orðspor af Íslandi að vera leiðandi í gæðum í öllu sem við kemur sjávarútvegi, og skartar sjófatnaður Mar Wear íslenska fánanum til að undirstrika uppruna vörunnar. „Það eru tiltölulega fáir um hituna á sjóklæðamarkaði en samkeppnin engu að síður hörð, og kemur sér tvímælalaust vel að hafa þann gæðastimpil að vera íslenskur framleiðandi. Eru erlendir kaupendur mjög áhugasamir um allt sem frá Íslandi kemur og líta upp til okkar sem eins konar ólympíumeistara í fiskveiðum.“

Að því sögðu þá þurfti að aðlaga vörurnar að hverju markaðssvæði og játar Þorsteinn að sniðin séu ekki þau sömu á sjófatnaðinum sem er seldur vestanhafs. „Það þurfti að víkka sniðin fyrir þann markað en á Grænlandi og á meginlandi Evrópu getum við notað sömu snið og við höfum þróað fyrir Ísland.“

Taka á móti viðskiptavinum í nýjum sal og verslun

Höfuðstövar Voot eru ekki lengur á Grindavík heldur á Skarfagörðum 4 í Reykjavík. Þar hefur verið innréttaður nýr sýningarsalur þar sem viðskiptavinir Voot og Hampiðjunnar geta skoðað vöruframboðið og mátað sjófatnað. Voot er á annarri hæð með skrifstofur sínar og sýningarsal en fremst í byggingunni er ný sameiginleg verslun Voot og Hampiðjunnar. Verður formleg opnun sýningarsalarins og verslunarinnar um þessa helgi.

„Það er allt annað líf að geta kynnt vörurnar með þessum hætti, frekar en að fá viðskiptavini inn á skrifstofu eða vörulager og hentug leið til að sýna allt það úrval sem fyrirtækin tvö hafa upp á að bjóða,“ segir Þorsteinn og bætir við að á dögunum hafi nýr starfsmaður verið ráðinn með bækistöð á Akureyri og verður hann svæðisstjóri Voot fyrir Norður- og Austurland. „Úrvalið heldur svo áfram að stækka og gerðum við nýlega umboðssamning við hollenska framleiðandann Matrix Lubricants og munum innan skamms hefja sölu á hágæða matvælaframleiðsluvottuðum glussa-, olíu- og smurefnum frá þeim.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »