Uppsagnir þungt högg fyrir samfélagið

„Það er auðvitað alltaf þungt fyrir öll samfélög þegar svona …
„Það er auðvitað alltaf þungt fyrir öll samfélög þegar svona atburðir eiga sér stað,“ segir Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, um uppsögn 32 starfsmanna Agustson ehf. mbl.is/Sigurður Bogi

Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, segir uppsögn allra 32 starfsmanna fiskvinnslufyrirtæksisins Agustson ehf. sé þungt högg fyrir samfélagið í Stykkishólmi. „Það er auðvitað alltaf þungt fyrir öll samfélög þegar svona atburðir eiga sér stað. Það er öllum ljóst að um var að ræða þungan rekstur í krefjandi samkeppnisumhverfi – í atvinnugrein sem sótt er að úr mörgum áttum samtímis,“ segir Jakob Björgvin.

Starfsmönnum fyrirtækisins var tilkynnt um ákvörðunina um að segja þeim upp frá og me mánaðarmótunum júní/júlí á starfsmannafundi á miðvikudag. Í tilkynningu frá félaginu kom fram að nú taki við „krefjandi endurskipulagningarferli með það að markmiði að tryggja sjálfbæran rekstur til lengri tíma“. Stefnt sé að því að halda úti rekstri en að umsvifin verði smærri.

Jakob Björgvin segir höggið ekki síst þungt í ljósi þess að Agustson ehf. hafi verið með starfsemi í Stykkishólmi frá árinu 1933, í nærri 90 ár, og verið á þeim tíma einn af burðarstólpum atvinnulífsins í Stykkishólmi. „Það er því rótgróið í samfélaginu og menningu bæjarins. Höggið er í samræmi við það.“ Jakob segir það högg vera þyngst fyrir þá starfsmenn sem missa sín störf hjá fyrirtækinu og er hugur hans hjá þeim starfsmönnum.

Högg fyrir útveg í Stykkishólmi

„Þetta er í raun viðbótarhögg fyrir sjávarútveginn í Stykkishólmi, en bæði í ár og í fyrra hafa grásleppusjómenn og vinnslur í Stykkishólmi liðið fyrir núverandi fyrirkomulag á grásleppuveiðum, en ekki náðist að klára fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi grásleppuveiða á Alþingi í vetur,“ segir Jakob Björgvin.

„Hér í Stykkishólmi er hins vegar fyrir sterkt og fjölbreytt atvinnulíf sem drifið er áfram af kraftmiklu fólki, sem kemur til með milda þetta samfélagslega högg. Þá eru jákvæð teikn á lofti í okkar samfélagi, það er uppgangur í atvinnulífinu hér eftir Covid-19 og fjölmörg tækifæri sem liggja fyrir í tengslum við auðlindanýtingu Breiðafjarðar. Við erum því vel í stakk búin til þess að takast á við þessa áskorun,“ segir Jakob Björgvin.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 472,36 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 334,13 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 216,07 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,09 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Ýsa 10.061 kg
Karfi 5.572 kg
Langa 958 kg
Samtals 16.591 kg
17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.4.24 472,36 kr/kg
Þorskur, slægður 17.4.24 568,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.4.24 334,13 kr/kg
Ýsa, slægð 17.4.24 266,28 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.4.24 216,07 kr/kg
Ufsi, slægður 17.4.24 257,51 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 17.4.24 163,09 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.4.24 Björg EA 7 Botnvarpa
Ýsa 10.061 kg
Karfi 5.572 kg
Langa 958 kg
Samtals 16.591 kg
17.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.544 kg
Steinbítur 551 kg
Þorskur 240 kg
Hlýri 99 kg
Skarkoli 96 kg
Langa 10 kg
Keila 6 kg
Karfi 2 kg
Samtals 2.548 kg
17.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.222 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 36 kg
Samtals 2.066 kg

Skoða allar landanir »