Þóra miðlar alls kyns upplýsingum til kaupenda

„Það hafa margir reynt en engum tekist að gera þennan …
„Það hafa margir reynt en engum tekist að gera þennan hluta rekstursins sjálfvirkan,“ segir Þóra Ýr Árnadóttir hjá Ramma um verkefni gæðastjóra. Ljósmynd/Aðsend

Starf gæðastjóra felst ekki síst í því að vera í samskiptum við kaupendur og gæta vandlega að hvers kyns formkröfum. Þóra Ýr hjá Ramma reiknar með að upplýsingar um samfélagsleg áhrif og kolefnisspor muni hafa æ meira vægi.

Á uppvaxtarárum sínum á Akureyri vakti það ekki endilega fyrir Þóru Ýri Árnadóttur að starfa í sjávarútvegi. Hún minnist þess að gott orðspor fór af rótgrónum og stöndugum útgerðum bæjarins en þegar Þóra hélt suður til Reykjavíkur í háskólanám vakti fyrir henni að gerast næringarfræðingur.

„Það vildi þannig til að fyrsta árið eru næringarfræði og matvælafræði kennd saman og rann það fljótlega upp fyrir mér að mér fannst miklu áhugaverðara að læra um framleiðsluferla matvæla en að rýna í næringartöflur, svo ég ákvað að breyta um stefnu,“ segir hún.

Þóra lauk matvælafræðigráðu frá Háskóla Íslands en meistaranáminu skipti hún á milli HÍ og Massachusets-háskóla. „Á sumrin vann ég hjá Sýni í Reykjavík sem er rannsóknarstofa sem þjónustar matvælaiðnaðinn með ýmsum hætti, og að námi loku flutti ég aftur heim til Akureyrar og fékk starf hjá ProMat, dótturfyrirtæki Sýnis fyrir norðan,“ segir Þóra söguna.

Veiðarfærin á Múlaberginu yfirfarin.
Veiðarfærin á Múlaberginu yfirfarin. Ljósmynd/Aðsend

„Þar vann ég í nokkur ár, meðal annars sem ráðgjafi fyrir matvælaframleiðendur. Eitt af stærstu verkefnum mínum sneri að rækjuvinnslu Ramma á Siglufirði og þegar ég sá að þetta verkefni var farið að taka næri allan minn tíma ræddi ég við stjórnendur fyrirtækisins og spurði þá hvort þeir vildu ekki hreinlega ráða mig í vinnu sem gæðastjóra.“

Mikil samskipti á bak við tjöldin

En hvaða verkefni eru það sem heyra undir gæðastjórann? Þóra segir svarið breytilegt á milli vinnustaða, og vinnudagur gæðastjóra á einum stað geti verið gjörólíkur vinnudegi gæðastjóra hjá öðru fyrirtæki. „Vinnudeginum ver ég að mestu fyrir framan tölvuna og er þar í góðu sambandi við okkar kaupendur og gæðadeildirnar hjá þeim. Á bak við tjöldin í öllum viðskiptum með sjávarafurðir fer fram mikil pappírsvinna og skiptumst við á skjölum, eyðublöðum og upplýsingum til að tryggja að öllum formkröfum sé fullnægt og upplýsingagjöf í takt við óskir kaupandans.“

Þarfir kaupenda geta verið mjög breytilegar, í takt við lagalegar kröfur í hverju landi og eins óskir neytenda á hverjum stað. Þá vilja kaupendur vita sem mest um eiginleika vörunnar, s.s. stærð og fjölda bita í hverri sendingu. „Vörulýsingin þarf að vera skýr og tiltaka m.a. hvernig umbúðir eru notaðar og úr hvaða efni, og staðfesta atriði á borð við hvort umbúðirnar séu endurvinnanlegar og hæfar til að geyma matvæli,“ útskýrir Þóra. „Þá vilja margir kaupendur fá upplýsingar um þætti sem snúa að vinnslunni sjálfri, s.s. húsakosti og viðhaldi á honum, og aðbúnaði starfsmanna.“

Allt sem á sér stað er vandlega skráð í samræmi …
Allt sem á sér stað er vandlega skráð í samræmi við ótalmarga staðla. Ljósmynd/Aðsend

Af og til kallar starf Þóru á að mæta á staðinn, taka sýni og gera mælingar. „En þá er ég oftast bara að horfa yfir öxlina á því fólki sem heldur utan um vinnsluna. Við erum með rosalega gott fólk að störfum sem fylgist með því að gæði og ástand vörunnar sé eins og best verður á kosið og er það helst þegar verið er að innleiða nýja ferla og aðferðir að ég verð að fylgjast mjög náið með daglegum störfum í fiskvinnslunum.“

Síbreytilegir staðlar

En væri ekki hægt að auka sjálfvirkni í starfi gæðastjórans, og t.d. samræma söfnun og miðlun gagna til að létta Þóru og kollegum hennar lífið? Hún segir málið ekki alveg svo einfalt: „Það hafa margir reynt en engum tekist að gera þennan hluta rekstursins sjálfvirkan. Skýringin er meðal annars sú að það eru svo margir ólíkir staðlar í boði og nýir staðlar bætast stöðugt við. Hjá Ramma erum við aðallega að vinna með um það bil tíu staðla sem snúast í raun allir um það sama, en engu að síður verður ekki hjá því komist að gera mikið af vinnunni handvirkt.“

Siglufjörður.
Siglufjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

Vinna gæðastjórans felst líka í því að auka gæði og bæta starfshætti með forvirkum hætti og reyna að sjá fyrir þarfir markaðarins. Þannig vinnur Þóra núna að því að búa til umgjörð utan um mælingu á samfélagslegum áhrifum starfsemi Ramma en margir sérfræðingar reikna fastlega með því að á komandi árum muni kaupendur gera æ ríkari kröfur um að seljendur sjávarafurða geti fært sönnur á að veiðar og vinnsla fari fram með samfélagslega ábyrgum hætti.

„Þessu tengt tókum við nýlega upp jafnlaunastefnu og skrifuðum undir samfélagsstefnu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Umhverfisáhrifin koma líka við sögu við mat á samfélagslegum áhrifum og þó þeir hafi ekki enn beðið um það er ég þess fullviss að áður en langt um líður muni kaupendur sjávarafurða vilja fá ítarlegar upplýsingar um kolefnisspor vörunnar.“

Eru betur meðvituð um krossmengun eftir faraldur

Líkt og önnur sjávarútvegsfyrirtæki þurfti Rammi að tryggja góðar smitvarnir í kórónuveirufaraldrinum. Þóra segir að ekki hafi komið til mikilla breytinga enda hafi skilvirkar forvarna- aðgerðir þegar verið til staðar í rekstrinum. Var það helst á starfsstöð Ramma á Þorlákshöfn að ráðast þurfti í ögn stærri breytingar því þar eru fleiri að störfum í einu og sama rýminu.

Þótt það hafi verið áskorun að takast á við faraldurinn þá vonast Þóra til að sú vitundarvakning sem varð í faraldrinum muni ekki gleymast: „Faraldurinn gerði almenning mjög vel meðvitaðan um hættuna af krossmengun, hvernig örverur geta borist á milli yfirborðsflata með snertingu. Ég held að fyrir marga hafi þetta verið lærdómsríkt tímabil og breytt hugarfari fólks þegar kemur að öruggri meðhöndlun matvæla heilt yfir iðnaðinn, frá frumframleiðendum til kjörbúða eða veitingahúsa og allt þar á milli.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »