Makríllinn ekki enn fundinn

„Það er bara eitt stórt núll,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í samtali við 200 mílur, aðspurður hvort eitthvað sé að frétta af makrílleit hjá Ísleifi VE í Smugunni.

„Skipin eru öll á sjó að leita og lítil sem engin veiði. Kap VE er suður af Vestmannaeyjum, Huginn VE er suðaustur af landinu og Ísleifur norðaustur af landinu. Við dekkum allt svæðið vel en ekkert finnst enn,“ sagði Sigurgeir Brynjar í gær.

Spurður hvort votti fyrir stressi með makrílleitina segir hann að aðstæðurnar séu nú töluvert öðruvísi en við höfum búið við síðastliðinn áratug eða svo.

„Það er greinilega þannig að göngur makríls hafa eitthvað breyst. Við urðum fyrst vör við það í fyrra og hittifyrra að þær væru eitthvað að breytast miðað við það sem við þekktum áður. Það verður víða vart við makríl en það er hvergi mikil veiði.“

Íslenski uppsjávarflotinn leitar nú makríls innan fiskveiðilögsögunnar og í Smugunni.
Íslenski uppsjávarflotinn leitar nú makríls innan fiskveiðilögsögunnar og í Smugunni. mbl.is/Árni Sæberg

Vond þróun

Á síðustu makrílvertíð var meirihluti makríls, sem veiddur var af íslenska flotanum, veiddur í Smugunni. Var það í fyrsta skipti frá því að makríllinn fór að veiðast hér við land sem íslenski flotinn þurfti að sækja sinn afla svo langt.

Sigurgeir Brynjar segir þróunina ekki góða hvort sem litið er til samningsstöðu Íslendinga í makríldeilunni um nýtingu deilistofna, né fyrir gæði hráefnisins sem landað er hér á landi.

Hann segir að það hafi sett Vinnslustöðina í erfiða stöðu í sölu og til dæmis hafi ekki tekist að uppfylla samninga um sölu makríls til Japan, sem er hátt borgandi markaður fyrir gæðahráefni.

„Fiskurinn var bara ekki nógu góður. Við ætluðum að selja 2.600 tonn til Japan í fyrra en við náðum því ekki.“

Þrátt fyrir stöðuna segist Sigurgeir Brynjar vera bjartsýnn.

„Ég held mig þó við mína fyrri skoðun um að makríllinn muni finnast og þetta gangi allt upp á endanum,“ segir hann. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur þegar tekið á móti um þrjú þúsund tonnum af makríl og frystihúsin og mannskapurinn eru klár.

Bráðliggur ekki á

Sigurður VE og Álsey VE voru í Rósagarðinum, suðaustur af landinu, þegar blaðamaður náði tali af Eyþóri Harðarsyni, útgerðarstjóra hjá Ísfélagi Vestmannaeyja og Álsey, á leiðinni í land með um 800 tonn af blönduðum afla af síld og makríl.

Heimaey VE hefur síðan verið suður af Eyjum og reynt fyrir sér þar. Eyþór tekur undir að hægt gangi að finna hreinan makríl en segir það ekki svo óvanalegt um miðjan júlí.

„Tíminn er þannig að það hefur alveg verið svona um miðjan júlí áður. Það bráðliggur ekkert á að finna þetta.“

Eyþór segir skip Ísfélagsins hafa reynt við makrílveiðar í Smugunni en makríllinn verið lélegur þar.

„Við erum að reyna að leita annars staðar,“ bætir hann við.

Eyþór segir þó að enn séu allir rólegir hjá þeim þó að dagarnir snúist núna um væntingar til þess að makrílveiðin fari að glæðast.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »