„Sýnir ógeðfellda hlið sjókvíaeldis á Íslandi“

Fremsti hluti af kjaft laxins er horfinn. Verndarsjóður villtra laxastofna …
Fremsti hluti af kjaft laxins er horfinn. Verndarsjóður villtra laxastofna segir þetta sýna raunverulega hlið íslensks sjókvíaeldis. Ljósmynd/Aðsend

„Nýlegt myndefni kajakræðarans Veigu Grétarsdóttur, staðfestir að opið sjókvíaeldi sé tifandi tímasprengja í íslensku umhverfi og þjóðlífi,“ segir í tilkynningu frá Verndarsjóði villtra laxastofna, North Atlantic Salmon Fund (NASF) á Íslandi.

Þá segir að umrætt myndefni „sýnir ógeðfellda hlið sjókvíaeldis á Íslandi sem hefur fram að þessu verið hulin almenningi, mikið særðan lax og óhreinar kvíar en að auki hafi komið fram að mikið rusl berist á land.“ Vísar sjóðurinn til mynda og myndbanda sem fyrst voru sýnd í kvöldfréttum RÚV á laugardag.

Illa farinn lax úr íslenskri sjókví.
Illa farinn lax úr íslenskri sjókví. Ljósmynd/Aðsend

Fullyrt er í tilkynningunni að ekki sé þannig að öllum fiski úr sjókvíunum sé slátrað. „Stór hluti deyr alltaf úr þrengslum, sjúkdómum og sníkjudýrum án þess að neytendur hafi vitneskju um hvílíkar efnalaugar opnar sjókvíar eru. Sem dæmi drápust um 400.000 laxar í íslenskum sjókvíum í júní á þessu ári og 1.350.000 laxar hafa drepist í sjókvíum það sem af er þessu ári.“

Þegar hefur borið á slysasleppingum og erfðablöndun að sögn sjóðsins sem segir slíkt geta útrýmt villta laxastofninum. Þá sé „aðeins ein leið eldis á laxi [sem] tryggir viðgang náttúru og efnahagslífs“ og er bent á landeldi. „Sjókvíaeldi er úreld og óumhverfisvæn framleiðsluaðferð. Nauðsynlegt er því að banna laxeldi í opnum kvíum áður en orðspor Íslands sem upprunaland hreinna afurða laskast og erlendar verslanir loka á innflutning á laxi vegna umhverfis- og dýraverndunarsjónarmiða.“

Hrognkelsi eru notuð gegn laxalús í sjókvíaeldi. Þessi fiskur hefur …
Hrognkelsi eru notuð gegn laxalús í sjókvíaeldi. Þessi fiskur hefur mist auga. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðmundur Arnar EA 102 Grásleppunet
Grásleppa 811 kg
Þorskur 429 kg
Skarkoli 36 kg
Steinbítur 15 kg
Samtals 1.291 kg
19.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.840 kg
Þorskur 148 kg
Skarkoli 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.008 kg
19.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 126 kg
Samtals 126 kg
19.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 213 kg
Samtals 213 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðmundur Arnar EA 102 Grásleppunet
Grásleppa 811 kg
Þorskur 429 kg
Skarkoli 36 kg
Steinbítur 15 kg
Samtals 1.291 kg
19.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.840 kg
Þorskur 148 kg
Skarkoli 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.008 kg
19.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 126 kg
Samtals 126 kg
19.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 213 kg
Samtals 213 kg

Skoða allar landanir »