Varpa ljósi á vistkerfi Grænlandssunds

Griparmur á Ægi 6000 með „sveppakóral“.
Griparmur á Ægi 6000 með „sveppakóral“. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Vísindamenn Hafrannsóknastofnunar ásamt kollegum sínum frá Greenland Natural Resources (GINR) og Zoological Society í London (ZSL) fóru á norska rannsóknaskipinu G. O. Sars í leiðangur 1. til 10. ágúst til að rannsaka vistkerfi hafsbotnsins í Grænlandssundi.

Þar mætir hlýr sjór frá Norður Atlantshafi köldum sjó frá Norðurslóðum og segir  í færslu á vef Hafrannsóknastofnunar að þar sé „mikill breytileiki í botnhita, straumhraða og botngerð sem hefur áhrif á samsetningu lífríkis á botninum“.

Á kortinu sjást þeir 28 staðir er kafað var á.
Á kortinu sjást þeir 28 staðir er kafað var á. Kort/Hafrannsóknastofnun
Ægir 6000 á leið á hafsbotn.
Ægir 6000 á leið á hafsbotn. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Ómannaði kafbáturinn Ægir 6000 var notaður í leiðangrinum, en hann er búinn hágæðamyndavélum sem tóku ljósmyndir og tóku upp myndbönd. Þá er á Ægi sérstakur griparmur sem nýttur var til að safna lífverum til frekari greininga.

„Kafað var á 28 stöðvum, bæði innan íslenskrar og grænlenskrar lögsögu. Mikill fjölbreytileiki svampa, kórala og annarra botndýra sást. Í flestum tilfellum er þetta fyrsta myndefni sem safnað hefur verið neðansjávar af þessum slóðum,“ segir í færslunni, en tveimur köfunum var streymt beint á samfélagsmiðlum.

Fjöldi vísindamanna tók þátt í leiðangri til að auka þekkingu …
Fjöldi vísindamanna tók þátt í leiðangri til að auka þekkingu á vistkerfinu á botni Grænlandssunds. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun
Svampur án nafns.
Svampur án nafns. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Fram fóru mælingar á straumum, seltu, hita og kolefni auk þess sem fjölgeislamælingar á botninum voru gerðar á þeim stöðum þar sem slík gögn voru ekki fyrirliggjandi. „Þær upplýsingar sem fást úr leiðangrinum munu varpa ljósi á auka skilning okkar á vistkerfi Grænlandssunds og eru góð undirstaða fyrir frekari rannsóknir á mögulegum breytingum og einnig til að meta verndargildi svæðisins.“

Leiðangurinn var hluti af verkefninu BENCHMARK og var styrktur af Eurofleets+ Evrópusjóðnum ásamt framlagi þeirra stofnana sem tóku þátt. Julian Burgos hjá Hafrannsóknastofnun stjórnaði leiðangrinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,80 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,33 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Grásleppa 2.154 kg
Þorskur 104 kg
Steinbítur 21 kg
Skarkoli 18 kg
Samtals 2.297 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Þorskur 52 kg
Samtals 52 kg
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.903 kg
Þorskur 288 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 10 kg
Samtals 2.240 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.440 kg
Samtals 1.440 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,80 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,61 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,33 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Grásleppa 2.154 kg
Þorskur 104 kg
Steinbítur 21 kg
Skarkoli 18 kg
Samtals 2.297 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Þorskur 52 kg
Samtals 52 kg
25.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.903 kg
Þorskur 288 kg
Steinbítur 25 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 10 kg
Samtals 2.240 kg
25.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.440 kg
Samtals 1.440 kg

Skoða allar landanir »