Stærsta holið 480 tonn

Bjarni Ólafsson AK á siglingu.
Bjarni Ólafsson AK á siglingu. Ljósmynd/Hákon Ernuson

Þorkell Pétursson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK, segir veiðina í síðasta túr hafa gengið framar björtustu vonum. „Aflinn fékkst í fimm holum en uppistaða aflans fékkst á þremur og hálfum sólarhring,“ segir hann í færslu á vef Síldarvinnslunnar.

Bjarni Ólafsson AK kom til hafnar í Neskaupstað í gærkvöldi með fullfermi af kolmunna, heil 1.800 tonn.

„Við byrjuðum á að fara út í Seyðisfjarðardýpið en þar var afskaplega lítið að hafa. Þá færðum við okkur í Rósagarðinn og þá fóru hlutirnir að gerast. Það er langt síðan sést hafa svona lóð á þessum árstíma þarna. Stærsta holið var 480 tonn og þá var dregið í sjö tíma. Við tókum svo annað 150 tonna hol þann daginn en það er ekki um neina næturveiði að ræða. Sannast sagna lítur þetta afskaplega vel út og það þurfti ekki mikið fyrir þessu að hafa þó fiskurinn væri svolítið botnlægur,“ segir Þorkell.

Hann segir fréttir af góðu fiskeríi hafa farið að berast hratt og að skipum hafi tekið að fjölga á svæðinu. „Hoffellið kom þegar við vorum búnir að vera að í einn og hálfan sólarhring og nú er Beitir kominn þarna og fleiri skip væntanleg. Við erum bara brattir og þetta lítur vel út. Það verður haldið til áframhaldandi veiða strax að löndun lokinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »