Annir á nótaverkstæðum

Það stefnir í veglega vertíð og mikilvægt að veiðarfærin séu …
Það stefnir í veglega vertíð og mikilvægt að veiðarfærin séu í topp standi. mbl.is/Hanna Andrés­dótt­ir

Annir eru þessa dagana á nóta- og netaverkstæðum og undirbúningur á fullu fyrir loðnuvertíð sem hefst væntanlega í lok næsta mánaðar. „Hér er mikill atgangur svo allt verði tilbúið fyrir þessa risavertíð, sem menn sáu ekki fyrir,“ segir Jón Oddur Davíðsson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar Ísland. Stefán Ingvarsson, framkvæmdastjóri Egersund á Íslandi, segir hjólin snúast af krafti þessa dagana á nótaverkstæði fyrirtækisins á Eskifirði. „Menn vinna við loðnunætur alla daga og dreymir loðnunætur flestar nætur,“ segir Stefán.

Loðnunót er engin smásmíði og gæti grunnnót verið um 115-120 metrar á dýpt, 480-500 metrar á lengd og þyngdin gæti verið nálægt 50 tonnum. Til samanburðar má nefna að fótboltavöllur er rúmlega 100 metrar á lengd. Djúpnót getur verið um 600 metra löng og 200 metra djúp. Auk þess er unnið við troll til að nota við loðnuveiðarnar.

Á Eskifirði keppast starfsmenn Egersund við að setja nýtt net …
Á Eskifirði keppast starfsmenn Egersund við að setja nýtt net í nót fyrir Hofellið SU frá Fáskrúðsfirði. Ljósmynd/Stefán

Vilja að veiðarfæri séu í lagi

Eftir loðnubann í tvo vetur og síðan tiltölulega litla, en arðsama, vertíð síðasta vetur eru loðnunætur yfirleitt í góðu standi. Eitthvað er þó um að verið sé að setja upp nætur frá grunni. Ekkert má út af bera þegar vertíðin byrjar og útgerðir og áhafnir vilja að veiðarfæri séu tilbúin og í góðu lagi. Því er verið að fara yfir loðnunætur, skipta um stykki sem hafa rifnað eða sauma minni göt.

Hampiðjan Ísland er með nótaverkstæði í Reykjavík, Vestmannaeyjum og Neskaupstað, en einnig netaverkstæði á Ísafirði og Akureyri og starfa alls um 70 manns hjá fyrirtækinu hérlendis. Egersund er með nóta- og netaverkstæði á Eskifirði þar sem starfa 18 manns. Í Neskaupstað er Hampiðjan með nótahótel og Egersund á Eskifirði. Næturnar eru þá geymdar í sérstökum hólfum tengdum verkstæðunum, en ekki úti undir berum himni.

Ísfell er með nótaverkstæði í Vestmannaeyjum og netaverstæði víða um land. Á Hornafirði rekur Skinney-Þinganes eigin veiðarfæragerð.

Margar vinnustundir

Nælonefni í loðnunætur er yfirleitt pantað í renningum, sem oft eru um 100 metra langir með mismunandi sverleika á garni eftir því hvar í nótina renningurinn á að fara. Mikil vinna er við að setja upp heila nót, en þær endast með viðhaldi og viðgerðum í allmörg ár. Þegar loðnuvertíð hefst þurfa netafyrirtækin að vera tilbúin að svara kalli ef nótin verður fyrir tjóni. Vertíðin stendur síðan í rauninni fram eftir ári með frekari lagfæringum til að allt verði tilbúið fyrir næstu vertíð.

Á loðnumiðum fyrir tveimur árum.
Á loðnumiðum fyrir tveimur árum.

„Almennt séð er gríðarlega mikið að gera í kringum vertíðina,“ segir Jón Oddur. „Menn eru á fullu að græja sig í þennan ofurkvóta, bæta í og hafa allt tilbúið, hvort sem það eru nætur eða troll sem menn nota á misjöfnum tímum við mismunandi aðstæður.

Við fáum mest af okkar efni frá Kína, Víetnam og Perú og staðan í heiminum hvað varðar flutninga og framleiðslu hefur ekki hjálpað okkur. Í raun höfum við ekki fyllilega getað annað því sem við hefðum viljað,“ segir Jón Oddur.

Allt á öðrum endanum

„Hér er mikið í gangi og allt á öðrum endanum,“ segir Stefán hjá Egersund. „Sannast sagna er loðnukvótinn miklu stærri en menn áttu von á, en menn leggja sig fram um að láta þetta ganga upp.“ Hann segir að Egersund hafi átt talsvert af efni á lager, en auk þess hafi fyrirtækið aðgang að Egersund í Noregi, sem sé með verksmiðju þar, sem hnýti loðnunet. Þá sé fyrirtækið í góðum tengslum við fyrirtæki í Litháen og Perú.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg
24.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 2.965 kg
Skarkoli 1.097 kg
Þorskur 668 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 11 kg
Rauðmagi 6 kg
Þykkvalúra 4 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 4.810 kg
24.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 5.775 kg
Þorskur 519 kg
Skarkoli 177 kg
Steinbítur 78 kg
Samtals 6.549 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg
24.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 2.965 kg
Skarkoli 1.097 kg
Þorskur 668 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 11 kg
Rauðmagi 6 kg
Þykkvalúra 4 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 4.810 kg
24.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 5.775 kg
Þorskur 519 kg
Skarkoli 177 kg
Steinbítur 78 kg
Samtals 6.549 kg

Skoða allar landanir »