„Þetta er alltaf jafn skemmtilegt“

Aqqaluk christensen 2. stýrimaður og Geir Zoëga skipstjóri í brúnni …
Aqqaluk christensen 2. stýrimaður og Geir Zoëga skipstjóri í brúnni á Polar Amaroq í gær.

„Við erum farnir að finna loðnulyktina og þetta er alltaf jafn skemmtilegt,“ sagði Geir Zoëga, skipstjóri á Polar Amaroq, síðdegis í gær. Hann var þá búinn að kasta á loðnutorfu Grænlandsmegin við miðlínu norðvestur úr Straumnesi. Geir sagði að ágætlega liti út með afla. Fyrir helgi fengust hátt í 110 tonn norðar í fjórum holum, en þá var haldið í land vegna veðurs. Aflinn er frystur um borð.

Polar Amaroq er fyrsta skipið sem heldur til loðnuveiða á þessu hausti, en nokkuð er orðið síðan loðnuvertíð byrjaði í október. Vonir standa til að vertíðin gefi yfir 900 þúsund tonna heildarafla, sem er það mesta síðan í byrjun aldarinnar. Í hlut íslenskra veiðiskipa koma alls um 670 þúsund tonn og hefur um 630 þúsund tonnum verið úthlutað til uppsjávarflotans. Grænlendingar, Norðmenn og Færeyingar eiga einnig hlutdeild í loðnunni.

Þetta lofar góðu

Geir sagði í gær að þeir væru að draga í þokkalegasta lóði og sagði gott veður á miðunum. Þeir fóru frá Akureyri á þriðjudag eftir að brælukaflinn gekk niður. Þar sem hann var í gær virtist vera þokkaleg loðnutorfa, en norðar hefðu verið minni punktar.

Geir sagði að spáin væri ekki góð um helgina, en vonandi fengju þeir vinnufrið fram á föstudagskvöld. Íslensku uppsjávarskipin hafa undanfarið verið á norsk-íslenskri síld og kolmunna fyrir austan land og sagði Geir að Polar Amaroq væri eina skipið sem byrjað væri að svipast um eftir loðnu. „Það er svo sem erfitt að vera einn að leita, en það eru hins vegar allir að bíða eftir fréttum og síminn stoppar ekki. Þetta lofar góðu og alltaf jafn gaman,“ sagði Geir á Polar Amaroq.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,58 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,78 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,83 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,58 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,78 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,83 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »