Aftur grunur um smit í Bergey sem snéri til hafnar

Bergey VE 144 snéri til hafnar í dag eftir að …
Bergey VE 144 snéri til hafnar í dag eftir að skipverji reyndist smitaður af kórónuveirunni. Ljósmynd/Egill Guðni Guðnason

Grunur er um að smit sé komið upp enn eina ferðina um borð í togaranum Bergey VE. Skipið er komið til hafnar í Vestmannaeyjum og er gert ráð fyrir að sýnataka fari fram í dag. Þetta herma heimildir 200 mílna.

Stutt er frá því að stöðva þurfti veiðar þegar skipverjar reyndust smitaðir í desember.

Skipið hélt til veiða frá Vestmannaeyjum um klukkan sjö í morgun eftir að lokið var við löndum um 80 tonnum sem komið var með til hafnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Var þá stefnan sett á miðin suður af Sólheimasandi en eftir nokkra siglingu austur fyrir Vestmannaeyjar vaknaði grunur um smit og var skipinu snúið við og haldið til hafnar á ný.

Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs Hugins, segir samtali við blaðamann að grunur hafi vaknað um smit. „Þetta er ekki staðfest smit, einn er grunaður og hann þarf bara að fara í sýnatöku. Við teflum ekkert á tvær hættur í þessu þessa dagana.“

Nokkur bræla hefur verið á miðunum og veðurhorfur eru versnandi að sögn Arnars. Fari allt að óskum heldur skipið til veiða á ný þegar veður gengur niður síðar í vikunni.

Sex smitaðir í desember

Í síðasta mánuði kom einnig upp smit um borð. Greindust þrír með hraðprófi þann 4. desember og reyndust síðar sex skipverjar smitaðir af veirunni. Áhöfnin var þá send í sóttkví og skipið sótthreinsað hátt og lágt.

Þann 12. desember gat skipið haldið til veiða á ný, en Bergey var jafnframt fyrsta skipið í flota Síldarvinnslunnar og dótturfélaga til að landa afla á nýju ári þegar það kom til hafnar í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 444,63 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 311,54 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,48 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.974 kg
Þorskur 88 kg
Skarkoli 60 kg
Ýsa 32 kg
Samtals 2.154 kg
19.4.24 Ísey ÞH 375 Grásleppunet
Grásleppa 2.259 kg
Þorskur 79 kg
Skarkoli 8 kg
Samtals 2.346 kg
19.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grálúða 458 kg
Samtals 458 kg
19.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.968 kg
Samtals 2.968 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 444,63 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 311,54 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,48 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.974 kg
Þorskur 88 kg
Skarkoli 60 kg
Ýsa 32 kg
Samtals 2.154 kg
19.4.24 Ísey ÞH 375 Grásleppunet
Grásleppa 2.259 kg
Þorskur 79 kg
Skarkoli 8 kg
Samtals 2.346 kg
19.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grálúða 458 kg
Samtals 458 kg
19.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.968 kg
Samtals 2.968 kg

Skoða allar landanir »