Erling í brotajárn eftir bruna um borð

Eldur kviknaði um áramótin þegar Erling Ke var við bryggju …
Eldur kviknaði um áramótin þegar Erling Ke var við bryggju í Njarðvíkushöfn en engin varð var við eldinn um borð. Ljósmynd/Aðsend

Í stað þess að vera byrjaðir netaróðra eins og venjulega á þessum árstíma vinna skipverjar á Erling KE 140 að því að hirða það sem er nýtilegt úr skipinu. Það skemmdist í bruna um áramótin þar sem það lá við bryggju í Njarðvíkurhöfn án þess að nokkur yrði var við eldinn. Ekki er talið svara kostnaði að gera við skipið, sem er tæpra 60 ára og verður það væntanlega dregið til Belgíu þar sem það fer í brotajárn.

Þosteinn Erlingsson, útgerðarmaður í Saltveri í Keflavík, segir að unnið sé að því að fá annað skip í stað Erlings, hvort sem það verði keypt eða leigt. Mestu skipti að ekkert tjón hafi orðið á fólki í brunanum.

Erling KE er myndarlegt skip. Það mun enda sem brotajárn.
Erling KE er myndarlegt skip. Það mun enda sem brotajárn. mbl.is/Sigurður Bogi

Allt svart og á kafi í sóti

Halldór Guðjón Halldórsson, skipstjóri á Erling KE síðustu tólf ár, segist hafa farið frá borði síðdegis fimmtudaginn 30. desember. Þegar hann hafi síðan komið til vinnu á mánudagsmorgni eftir áramót hafi aðkoman verið nöturleg.

„Allt var svart og á kafi í sóti,“ segir Halldór. „Við vonuðum fyrst að pústið hefði gefið sig því ljósavélin var í gangi, en fljótlega kom í ljós að eldur hafði mallað í mannlausu skipinu í einhvern tíma. Brunatjón varð einkum í setustofu framan við borðsalinn, en sót var um allt; í íbúðum og uppi í brú. Netin voru komin á bryggjuna og til stóð að fara út að leggja, en það verður einhver bið á því,“ segir Halldór. Ekki er vitað um eldsupptök.

Erling KE var smíðaður í Noregi 1964 og er 250 tonn. Á skipinu eru um 1.500 þorskígildistonn, þar af um 1.200 tonn af þorski. Áður hefur skipið borið nöfnin Óli á Stað, Júlli Dan, Barðinn, Skírnir og Akurey og verið gert út frá ýmsum stöðum.

Miklar skemmdir voru eftir brunan.
Miklar skemmdir voru eftir brunan. Ljósmynd/Aðsend
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 449,16 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 314,23 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,79 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 38 kg
Rauðmagi 3 kg
Steinbítur 3 kg
Skarkoli 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.731 kg
19.4.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Skarkoli 3.982 kg
Steinbítur 1.328 kg
Þorskur 123 kg
Sandkoli 86 kg
Grásleppa 43 kg
Þykkvalúra 17 kg
Samtals 5.579 kg
19.4.24 Siggi Bjartar ÍS 50 Grásleppunet
Grásleppa 3.507 kg
Þorskur 79 kg
Rauðmagi 41 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 3.638 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 449,16 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 314,23 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 152,79 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 133,77 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 38 kg
Rauðmagi 3 kg
Steinbítur 3 kg
Skarkoli 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.731 kg
19.4.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Skarkoli 3.982 kg
Steinbítur 1.328 kg
Þorskur 123 kg
Sandkoli 86 kg
Grásleppa 43 kg
Þykkvalúra 17 kg
Samtals 5.579 kg
19.4.24 Siggi Bjartar ÍS 50 Grásleppunet
Grásleppa 3.507 kg
Þorskur 79 kg
Rauðmagi 41 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 3.638 kg

Skoða allar landanir »