Hægur gangur í máli Reiknistofu gegn NRS

Bolungarvík. Fiskur sem átti að selja á Fiskmarkaði Vestfjarða í …
Bolungarvík. Fiskur sem átti að selja á Fiskmarkaði Vestfjarða í gegnum uppboðskerfi NRS er nú seldur í gegnum kerfi Reiknistofu fiskmarkaða. mbl.is/Sigurður Bogi

Fyrirtaka í máli Reiknistofu fiskmarkaða ehf. gegn NRS ehf. og stofnendum félagsins, Eyjólfi Þór Guðlaugssyni og Erlingi Þorsteinssyni, fór fram síðastliðinn föstudag, en næstu skrefum í meðferð málsins var frestað. Ekki er að finna nýja dagsetningu á dagskrá Héraðsdóms Reykjaness um hvenær málaferlin halda áfram.

Lögbann hefur verið á starfsemi NRS frá því í október í fyrra.

NRS var stofnað með það í huga að annast uppboð fiskmarkaða, en Reiknistofa fiskmarkaða hefur hingað til verið eina fyrirtækið hér á landi sem boðið hefur þessa þjónustu. Tveir fiskmarkaðir ákváðu að fela NRS að sjá um uppboð fyrir sína hönd, Fiskmarkaður Vestfjarða og Fiskmarkaður Snæfellsbæjar, og átti fyrsta uppboðið að fara fram 22. október.

Sama dag féllst sýslumaður á kröfu Reiknistofu fiskmarkaða um lögbann á starfsemi NRS. Við það fluttust öll uppboð til Reiknistofu fiskmarkaða á ný og hafa verið þar síðan.

Tjáir sig ekki að svo stöddu

„Þetta gengur mjög hægt. Þetta hefur gengið mun hægar heldur en maður var að vonast til,“ segir Eyjólfur sem kveðst ekki vilja tjá sig frekar á meðan málarekstur er enn fyrir dómstólum.

Kröfur Reiknistofu fiskmarkaða byggjast helst á því að Eyjólfur hafi ekki haft heimild til að nýta þekkingu sína með þessum hætti, í þágu keppinautar, eftir þrjátíu ára starf fyrir Reiknistofu fiskmarkaða.

Eyjólfur Þór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri NRS ehf.
Eyjólfur Þór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri NRS ehf. Ljósmynd/Aðsend

Tilboðskerfi og þjónusta

NRS hugðist bjóða upp á ýmsar nýjungar við uppboð sín svo sem nýtt viðmót fyrir notendur.

Jafnframt átti að láta reyna á nýtt tilboðskerfi fyrir stærri farma sem er ekki eins hraðvirkt og hefðbundnu uppboðsferlin. Þegar slíku tilboðsferli er lokið reiknar kerfi NRS út hvaða samsetning á tilboðum gefur mestu verðmætin. Það er því ekki alltaf sá sem býður hæsta verðið sem fær það sem hann býður í, það er að segja ef hann býður bara í hluta boðsins. Auk þess getur seljandi sett lágmarksverð í tilboðskerfinu og ef það næst ekki verður ekki sala.

NRS ætlaði einnig bjóða upp á lausn sem felur í sér kaup á þjónustu beint af fiskmörkuðum í gegnum kerfi fyrirtækisins og getur það verið til að mynda slæging eða gámafrágangur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sindri BA 24 Grásleppunet
Grásleppa 608 kg
Þorskur 16 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 633 kg
19.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 858 kg
Þorskur 60 kg
Skarkoli 19 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 939 kg
19.4.24 Jón Bjarni BA 50 Grásleppunet
Grásleppa 368 kg
Steinbítur 30 kg
Þorskur 11 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 417 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sindri BA 24 Grásleppunet
Grásleppa 608 kg
Þorskur 16 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 633 kg
19.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 858 kg
Þorskur 60 kg
Skarkoli 19 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 939 kg
19.4.24 Jón Bjarni BA 50 Grásleppunet
Grásleppa 368 kg
Steinbítur 30 kg
Þorskur 11 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 417 kg

Skoða allar landanir »