Björgunarskip í slipp eftir tjón í hvassviðrinu

Skemmdir urðu á björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafsteini á meðan það …
Skemmdir urðu á björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafsteini á meðan það var við bryggju í hvassvirðinu. Samsett mynd

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein í Sandgerði varð fyrir tjóni við legupláss sitt í hvassviðrinu í gær. Við hamaganginn í veðrinu kom gat á bakborðssíðu skipsins rétt undir dekkinu en þó vel ofan sjólínu og fór því ekki sjór í skipið.

Þetta upplýsir Örn Smárason, verkefnastjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, í tölvupósti til 200 mílna.

Þar segir að farið verður með skipið í slipp í Njarðvík í dag þar sem það verður tekið upp á flóðinu. „Í gærkvöldi þegar að haft var samband við slippinn í Njarðvík brugðust þeir við í hvelli og buðu pláss og viðgerð með hraði. Umfang tjónsins er ekki alveg ljóst og verður ekki fyrir en að skipið er komið í slippinn en mjög varlega áætlað tekur aldrei minna en 10 daga að gera við þetta tjón sem orðið hefur,“ skrifar Örn.

Tekur á sig mikinn vind

Vekur hann athygli á því að Hannes Þ. Hafstein sé af gerðinni Arun Class rétt eins og flest skip Landsbjargar. Þessi gerð hefur mörg góð einkenni að sögn Arnar en vindfang yfirbyggingarinnar sé ekki alltaf kostur. Í ljósi þess að hve mikinn vind skipið tekur á sig er nokkuð lán að frekara tjón varð ekki sérstaklega með tilliti til þess að það reyndi verulega á hafnarmannvirki í Sandgerði þegar skipið hálf lá á flotbryggjunni, útskýrir hann.

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafsteinn.
Björgunarskipið Hannes Þ. Hafsteinn. Ljósmynd/Ríkarður Ríkarðsson

„Á meðan á viðgerðinni stendur skoða sjálfboðaliðar í Sandgerði í samstarfi við höfnina þar hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir að svona tjón verði aftur. Sagt skal að samstarfið við Sandgerðishöfn hefur verið einstaklega gott þar sem skipið hvorki greiðir fyrir rafmagn né hafnargjöld,“ skrifar Örn.

Kostnaður vegna viðgerðanna á Hannesi Þ. Hafstein falla alfarið á herðar Landsbjargar þar sem eldri skip félagsins eru tryggð með húftryggingu með takmarkaðri ábyrgð. Örn segir gert sé ráð fyrir áföllum sem þessum í áætlunum viðhaldssjóðar björgunarskipa.

„Vonandi verða frátafir Hannesar ekki miklar, enda hafsvæðið sem hann sinnir mikið og fjölsótt af öllum gerðum skipa,“ segir hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »