Veiðin á loðnumiðunum norðaustur af landinu gengur vel samkvæmt skipstjórunum á Berki NK og Beiti NK. Börkur er nú staddur norður af Borgarfirði eystri og er á leið með afla til Neskaupstaðar, en Beitir er á veiðum.
Í færslu sem birt var á vef Síldarvinnslunnar síðdegis í gær sagði Hjörvar Hjálmarsson, skisptjóri á Berki, skipið hafa verið á veiðum 50 sjómílur norðaustur af Langanesi.
„Hér eru íslensku skipin og einnig grænlensku skipin Polar Amaroq og Polar Ammasak. Við vorum að enda við að dæla 590 tonnum og hér er fínasta veiði. Hér er komin alvöru gusa og töluvert mikið að sjá. Við erum komnir með 2.840 tonn um borð og vonandi þurfum við bara eitt hol í viðbót til að fylla. Hér er bjart yfir mönnum,“ segir Hjörvar.
Veiðin hefur einnig gengið vel hjá áhöfninni á Beiti, að sögn Tómasar Kárasonar, skipstjóra skipsins. Hann segir í færslunni Beiti hafa verið mætt á miðin aðfararnótt gærdagsins eftir að hafa landað 2.500 tonnum í Neskaupstað.
„Við erum búnir að taka tvö hol, eitt þriggja tíma og eitt átta tíma, og komnir með 600 tonn. Loðnan sem fæst er falleg og stærri en við höfum verið að fá að undanförnu. Mér líst þrusu vel á framhaldið; það er verið að veiða loðnu út um allt hérna, það er ekki verið að veiða úr einni göngu,” var haft eftir Tómasi í færslunni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.663 kg |
Ýsa | 48 kg |
Steinbítur | 9 kg |
Samtals | 1.720 kg |
23.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 3.165 kg |
Ýsa | 1.316 kg |
Steinbítur | 180 kg |
Karfi | 29 kg |
Skarkoli | 3 kg |
Samtals | 4.693 kg |
23.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.739 kg |
Ýsa | 40 kg |
Karfi | 37 kg |
Samtals | 1.816 kg |
23.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.450 kg |
Samtals | 4.450 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.663 kg |
Ýsa | 48 kg |
Steinbítur | 9 kg |
Samtals | 1.720 kg |
23.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 3.165 kg |
Ýsa | 1.316 kg |
Steinbítur | 180 kg |
Karfi | 29 kg |
Skarkoli | 3 kg |
Samtals | 4.693 kg |
23.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.739 kg |
Ýsa | 40 kg |
Karfi | 37 kg |
Samtals | 1.816 kg |
23.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.450 kg |
Samtals | 4.450 kg |