Matvælastofnun (MAST) segir að engar tilkynningar hafi borist frá Hval hf. um að skortur á fullgildu leyfi hamlaði veiðum og vinnslu.
Í viðtali í Morgunblaðinu á miðvikudag sagði Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. að á árunum 2019-2021 hefðu veiðar legið niðri af hálfu fyrirtækisins vegna skorts á leyfi frá MAST.
Í tilkynningu frá MAST segir að hefðbundin útgáfa starfsleyfa til matvælavinnslu byggist á skilgreindu verklagi þar sem fyrst er gefið út skilyrt starfsleyfi til þriggja mánaða í kjölfar fyrstu skoðunar á vinnslu og gögnum sem eru fyrir hendi. Að þeim tíma liðnum er áætlað að fara í aðra úttekt, skilyrði sannreynd og fullgilt leyfi gefið út.
Þá segir að í seinni úttekt á Hval hf. hafi komið í ljós að ákveðin gögn vantaði í tengslum við innra eftirlit og áhættumat, svo ekki var hægt að gefa út fullgilt starfsleyfi.
Í viðtali við Morgunblaðið rak Kristján sína hlið málsins. Hvalur hf. fékk bráðabirgðaleyfi í júní árið 2018. Forsvarsmenn Hvals hf. óskuðu eftir fullnaðarúttekt 4. september 2018 til þess að hægt væri að veita félaginu óskilyrt vinnsluleyfi.
Á næstu tveimur árum óskaði MAST síðan eftir frekari gögnum í nokkur skipti sem Hvalur hf. útvegaði eins fljótt og auðið var að sögn Kristjáns.
Í tilkynningu MAST segir hins vegar að fullnægjandi gögn hafi ekki borist fyrr en haustið 2021 og var þá gefið út fullgilt leyfi.
Hvalur hf. kærði óhóflegan drátt á málsmeðferð til sjávarútvegsráðherra en málinu var vísað frá þar sem leyfið hafði þá verið gefið út. Matvælaráðuneytið ákvað 15. febrúar 2022 að endurupptaka stjórnsýslukæruna.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |