Þorskur síðasta árs undir meðalstærð

Niðurstöður HAfrannsóknastofnunar benda til þess að árgangurinn 2021 sé undir …
Niðurstöður HAfrannsóknastofnunar benda til þess að árgangurinn 2021 sé undir meðalstærð allra árganga frá 1984. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Valur Bogason

„Fyrsta mæling á 2021 árgangi þorsks bendir til að hann sé undir meðalstærð árganga frá 1984,“ segir í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar vegna nýrrar skýrslu um framkvæmd og helstu niðurstöðum stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum sem fram fór dagana 28. febrúar til 24. mars.

Þar segir að niðurstöður eru bornar saman við fyrri ár og að verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti ár hvert frá árinu 1985.

Fram kemur að stofnvísitala þorsks hafi hækkað samfellt á árunum 2007 til 2017, aðallega vegna aukins magns af stórum þorski. „Eftir lækkun árin 2018-2020 hefur vísitalan hækkað aftur. Þó svo að vísitala þorsks hafi aukist lítillega frá árinu 2020 er hún mun lægri en hún var á árunum 2015-2017. Árgangur 2020 er nálægt meðaltali af fjölda 2 ára, árgangur 2019 mælist yfir meðaltali 3 ára þorsks og árgangar 2018 og 2017 eru nálægt meðaltali 4 og 5 ára,“ segir í tilkynningunni.

Í mælingu síðastliðins vetur mældist meðalþyngd 2, 3 og 5 ára þorsks undir meðaltali áranna 1985 til 2022. Meðalþyngd annarra aldurshópa var hins vegar um eða yfir meðaltali.

„Undanfarinn áratug hefur meðalþyngd 5 ára og yngri oftast verið undir meðaltali tímabilsins, en meðalþyngd eldri þorsks verið yfir meðaltali. Loðna var helsta fæða þorsks, ýsu og ufsa eins og ávallt á þessum árstíma. Talsvert var af loðnu í mögum flestra lengdarflokka þessara tegunda á grunnslóð allt í kringum landið. Þorskur er yfirleitt innan við 1% af fæðu 40-110 sm þorsks í marsmánuði (í ár 0,9%),“ er fullyrt í tilkynningunni.

Aðrir ´æargangar hafa verið yfir meðaltalinu.
Aðrir ´æargangar hafa verið yfir meðaltalinu. mbl.is/Sigurður Bogi

Yngsta ýsan undir meðaltali

Skýrslan gefur einnig til kynna að ýsustofninn hafi tekið við sér og hefur vísitala stofnsins farið hækkandi frá árinu 2016. Árgangar ýsu frá 2017, 2019 og 2020 mælast yfir meðaltali en yngsti árgangurinn frá 2021 er undir meðaltali. Árgangur ýsu frá 2018 er lélegur.

„Meðalþyngd ýsu eftir aldri hefur verið há undanfarin ár og mældist nú yfir meðaltali hjá öllum aldurshópum nema 2 og 3 ára. Loðna var helsta fæða ýsu eins og ávallt á þessum árstíma. Talsvert var af loðnu í mögum flestra lengdarflokka á grunnslóð allt í kringum landið.“

Breytt útbreiðsla

Um þróun annarra tegunda segir: „Vísitala ufsa hefur lækkað frá 2018 og er nú nálægt meðaltali rannsóknatímans. Vísitölur gullkarfa, löngu, keilu, steinbíts og litla karfa eru háar miðað við síðustu fjóra áratugi. Vísitala skötusels heldur áfram að lækka og hefur ekki verið lægri frá því fyrir aldamót. Stofn hlýra er enn nálægt sögulegu lágmarki en vísitala tindaskötu hækkar talsvert eftir langvarandi niðursveiflu. Vísitala grásleppu mældist í ár nálægt meðaltali áranna frá 1985.“

Á tímabilinu 1985 til 2022 hefur útbreiðsla nytjafiska breyst og er bent á að þungamiðja útbreiðslu ýsu og skötusels hafi færst vestur og norður fyrir land upp úr aldamótum. „Ýsa fékkst nú í svipuðu magni allt í kringum landið. Stofnmælingar síðustu ára benda til að útbreiðsla skötusels sé aftur farin að líkjast því sem var fyrir aldamót þegar stofninn var lítill, þ.e. bundin við sunnanvert landið.“

Góð ýsuveiði hefur verið í vetur.
Góð ýsuveiði hefur verið í vetur. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson.

Hátt hitastig

Þá hefur magn ýmissa suðlægra tegunda sem lítið eru nýttar aukist, til að mynda svartgóma, loðháfur, litla brosma og trjónuhali. Á sama tíma hafa ýmsar kaldsjávartegundir gefið eftir á landgrunninu fyrir norðan.

„Kolmunni, spærlingur og síld fengust á óvenju mörgum stöðvum í marsralli 2022. Í fyrra fékkst tegundin brislingur í fyrsta skipti í marsralli en brislingur fannst fyrst á Íslandsmiðum árið 2017. Í ár fengust 25 brislingar á 10 stöðvum á grunnslóð við sunnan- og vestanvert landið frá Ingólfshöfða til Arnarfjarðar,“ segir í tilkynningunni.

Í leiðangri veturins mældist hitastig við botn að meðaltali hátt í takti við undanfarin ár. Þó mældist lækkun hitastigs grunnslóð fyrir norðan og austan frá hámarkinu 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »