Dettifoss besta skip sem ég hef kynnst

Ríkharður Sverrisson, skipstjóri á Dettifossi, kveðst ekki muna eftir eins …
Ríkharður Sverrisson, skipstjóri á Dettifossi, kveðst ekki muna eftir eins miklum sviptingum í veðri eins og síðastliðinn vetur. mbl.is/Sigurður Bogi

Skipstjórinn stendur í brúnni og er stoltur af sínu. „Dettifossinn nýi er besta skip sem ég hef nokkru sinni kynnst,“ segir Ríkharður Sverrisson og í augum bregður fyrir bliki. Af Skansinum í Þórshöfn í Færeyjum má fylgjast með ferðum stórskipsins sem skríður ljúft með landi að bryggju.

Á sundinu við Nólsey mætast keppinautar; Dettifoss Eimskipafélagsins og Helgafellið að koma frá Danmörku og siglir til Runavikur, þar sem afgreiðsla Samskipa er. Eimskip er aftur á móti á sínum fasta pósti í Þórshöfn. Á öllum tímum hafa Færeyjar verið einn af lykilstöðunum í flutninganeti félagsins þangað sem skipin flytja aðföng og afurðir frá.

Grænland er fyrst og síðan Evróputúr

Þrjú skip sigla hina Rauðu leið Eimskips; það er Dettifoss, Brúarfoss og Tukjuma Arctica sem er í eigu grænlenska félagsins Royal Artic Line (RAL). Eimskip og Grænlendingarnir eru í samsiglingum um þessa áætlun, í samstarfi sem hefur gilt í um tvö ár. Þegar ný áhöfn kemur í skip í Reykjavík á þriðjudegi er Nuuk fyrst á dagskrá, en að sigla þangað og aftur heim tekur eina viku. Strax á eftir kemur tveggja vikna Evróputúr.

Fyrsta stopp í túrnum langa er Reyðarfjörður. Svo er lagt á Atlanthafið og fyrsta stoppið þá er Þórshöfn í Færeyjum þangað sem er komið síðdegis á föstudegi. Næsta koma Árósar í Danmörku, þá Álaborg og svo Helsingborg í Svíþjóð. Komið á föstum tíma í hverja höfn og stífri áætlun haldið. Frá Færeyjum er fiskur, svo sem eldislax, uppistaðan í fraktinni, en í viðkomu þar á heimleið til Íslands er almenn neysluvara fyrir eyjaskeggja í mörgum gámum. Einnig er sóttur kostur fyrir Grænlendinga í gegnum RAL, þótt mest af því sem skipin á rauðu leiðinni flytja fari auðvitað til Íslands. Skipin sem sigla Gulri leiði hjá Eimskip koma einnig við í Þórshöfn á leiðinni út. Koma þá fyrst við í Vestmannaeyjum og svo Færeyjum, en halda halda síðan áfram til Evrópu með fyrsta stoppi í Immingham í Bretlandi.

Dettifoss við bryggju í Þórshöfn.
Dettifoss við bryggju í Þórshöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Gamli og nýi tíminn mætast í Þórshöfn

„Mér finnst alltaf gott að koma hingað til Færeyja, Þórshöfn er fallegur bær þar sem gamli og nýi tíminn mætast,“ sagði Ríkharður skipstjóri sem Morgunblaðið hitti þar ytra í síðustu viku.

„Siglingin yfir hafið nú gekk eins og í sögu og því fylgir alltaf sérstök stemning að sjá eyjarnar rísa úr hafi. Komum þá fyrst að Fugley og Svíney, en nú förum við austan við eyjarnar og komum þá leið inn til Þórshafnar. Eftir að hafa siglt þessa áætlun í bráðum tuttugu ár verður hver ferð þó annarri lík. Frá því Covid skall á höfum við til dæmis tæpast farið frá borði í höfnum, en nú þegar veiran er í rénun verður breyting á því. Eins er gaman eins og nú að fá góðan gest um borð,“ segir kapteinninn og beinir orðum sínum til blaðamanns.

Óveður og ísjakar

Dettifoss og Brúarfoss komu ný inn í skipastól Eimskips fyrir um tveimur árum. Skipin eru 26.169 brúttótonn; búin öllum bestu tækjum og vel er fyrir öllu séð. Meðal annars er skipið sérstaklega styrkt til siglinga á Norður-Atlantshafi, á þungum rúmsjó þar sem margt þarf að hafa í huga.

„Ég hef verið til sjós mjög lengi en man ekki eftir eins miklum sviptingum í veðri og verið hafa á síðustu mánuðum. Þetta er minn alversti vetur til sjós. Núna í mars við Grænland lentum við í djúpri lægð suður af Hvarfi. Sú var 932 millibör og vindur fór í 50 metra á sekúndu. Þá hefur verið mikið um ís við Grænland í allan vetur, meðal annars borgarísjaka sem brotna frá jöklinum og rekur út. Um þetta má með almennum orðum segja að öfgar í veðráttu eru nú á allra síðustu árum mun meiri en áður var. Auðvitað liggur beint við að segja þetta áhrif hnattrænnar hlýnunar í andrúmsloftinu, þótt ég geti auðvitað ekkert fullyrt um slíkt.“

Siglingin heldur áfram

Sem unglingur var Ríkharður Sverrisson sendill á Morgunblaðinu sumarlangt og minnist þess sem skemmtilegs tíma. Eins og hefðin í fjölskyldunni bauð fór okkar maður til sjós; var munstraður sem messi á einum Fossanna vorið 1973 og með því var teningunum kastað. Háseti, stýrimaður og nú síðast skipstjóri. Á Dettifossi tekur hann sem skipstjóri annan hvern túr á móti Kristjáni Ólafssyni.

Ríkharður stígur ölduna, verður senn 65 ára og kemur í land eftir tvö ár. „Þótt skipin verði æ betri og tæknin meiri þá er farmennskan í sjálfu sér alltaf eins. Íslendingar eiga allt sitt undir sjóflutningum og verða að halda sínum hlut þar. Siglingar ráða sjálfstæði þjóða. Sem skipstjóri hef ég reynt að vera sanngjarn við mína menn í áhöfninni, svo mórall sé í lagi og hlutir gangi vel. Siglingin heldur endalaust áfram,“ segir skipstjórinn á Dettifossi að síðustu.

Mikið um að vera í höfninni í Þórshöfn.
Mikið um að vera í höfninni í Þórshöfn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »