Fisktækniskólinn útskrifaði í síðustu viku 16 nemendur á Bíldudal, þar af sjö af fisktæknibraut og níu úr fiskeldistækni, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá skólanum. Þar segir að flestir nemendur séu starfsmenn fiskeldisfyrirtækjanna Arnarlax og Arctic Fish, en um er að ræða annað sinn sem skólinn útskrifar nemendur frá Bíldudal í samstarfi við fyrirtækin tvö.
„Störf í haftengdum greinum krefjast stöðugt meiri gæða og aukinnar fagþekkingar starfsfólks. Það er ávinningur fyrirtækja sem vilja starfa í virku samkeppnisumhverfi að hafa innan sinna raða vel þjálfað starfsfólk með faglega þekkingu,“ segir í tilkynningunni.
Þá er vakin athygli á því að Fisktækniskólinn hefur átt í samstarfi við Arnarlax á undanförnum árum og er fiskeldisfyrirtækið meðal annars samstarfsaðili í Evrópuverkefninu Bridges, sem snýr að því að samræma nám í fiskeldi á framhaldsskólastigi á milli Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Einnig er unnið með Arnarlaxi að þróun rafræns kennsluefnis vegna nýliðafræðslu og endurmenntunar.
Nám tengt framtíðarstörfum
Báðar námsgreinarnar geta verið liður í námi á framhaldsskólastigi. Þannig er fisktækninámið tveggja ára grunnnám eða 120 einingar á framhaldsskólastigi og fiskeldistæknin framhaldsskólabraut á þriðja þrepi eða 60 einingar, 30 verklegar og 30 bóklegar.
„Nám í fiskeldistækni hentar fólki sem þegar er starfandi í greininni, sem sérhæfing í framhaldi af Fisktækninámi, en einnig fólki sem vill undirbúa sig fyrir framtíðastörf við fiskeldi þar sem horft er fram á gríðarlegan vöxt á næstu árum hvort sem er á landi eða í sjókvíaeldi,“ er útskýrt í tilkynningunni.
„Einstaklingar utan skóla eiga þess kost að gangast undir raunfærnimat. Þeir geta nýtt niðurstöður matsins til skipulagningar náms á framhaldsfræðslustigi, til styttingar náms á framhaldsskólastigi eða til staðfestingar á hæfni sinni á vinnumarkaði. Fisktækniskólinn hefur komið að raunfærnimati í haftengdum greinum í samstarfi við fræðslumiðstöðvar um land allt.“