Ungir sem aldnir mættu til að dorga á Norðurbakkanum í Hafnarfirði síðdegis í dag. Stóð framboð sjálfstæðismanna að því að koma fólki saman og dorga. Voru meðal annars veitt verðlaun fyrir flesta fiska og fallegustu stöngina.
„Við vildum gera eitthvað skemmtilegt,“ svarar Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, er blaðamaður spyr hvers vegna hafi verið efnt til hóp-dorgs. „Það er nýbúið að gera upp Norðurbakkan og er frágangur búinn að standa yfir síðustu mánuði. Þetta er mjög vinsælt svæði til að dorga og nú er komin svo skemmtileg og falleg aðstaða að við ákváðum að skella í þetta.“
Boðið var upp á grillaðar pylsur og síðan haldið til veiða. En dorgar bæjarstjórinn mikið sjálf? „Nei ég get nú ekki sagt það,“ svarar Rósa og hlær. Hún kveðst þó hafa verið að prófa sig áfram í veiði á ám landsins.
Rósa segir mikla hefð fyrir því að dorga í höfninni í Hafnarfirði og er það vinsælt meðal allra aldurshópa. „Nú er aðstaðan orðin svo skemmtileg og ég á von á því að þetta svæði verði enn meira notað.“