Ísland fylgi reglum um framleiðslu á fisklýsi

Fisklýsi er vinsælt meðal Íslendinga.
Fisklýsi er vinsælt meðal Íslendinga. mbl.is/Ómar Óskarsson

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sendi á miðvikudag formlegt áminningarbréf til Íslands þar sem kallað er eftir því að Ísland fylgi EES-reglum sem kveða á um kröfur til hráefnis sem notað er við framleiðslu á fisklýsi. Ísland þarf einnig að bæta opinbert eftirlit með framleiðslu á fisklýsi eða fiskimjöli sem ekki er ætlað til manneldis. 

Fram kemur í tilkynningu frá ESA að Íslandi beri skylda samkvæmt EES-reglum að tryggja að hráefni og framleiðsluferlar á starfsstöðvum sem framleiða jafnt fisklýsi til manneldis og fiskimjöl og –lýsi sem ekki er ætlað til manneldis uppfylli strangar kröfur um hollustuhætti matvæla, til þess að forðast krossmengun og tengda áhættu gagnvart almannaheilbrigði.

ESA gerði úttekt á Íslandi í maí 2017 til að meta opinbert eftirlit samkvæmt kröfum EES um fóðuröryggi. Þar kom í ljós að opinbert eftirlit með framleiðslu á fisklýsi væri ófullnægjandi. Í kjölfar úttektarinnar sendi ESA fjölmörg bréf sem ekki fengust fullnægjandi svör við. Því sendi ESA formlega áminningarbréf til Íslands í dag.

ESA hefur því komist að þeirri niðurstöðu að Ísland hafi ekki með fullnægjandi hætti tryggt með opinberu eftirliti að framleiðsla í starfsstöðvum sem framleiða bæði fisklýsi til manneldis og fiskimjöl- og lýsi sem ekki er ætlað til manneldis, uppfylli kröfur um hollustuhætti matvæla. Að auki samþykkti Ísland löggjöf árið 2017 sem stangast á við reglur EES um hráefni sem notuð eru við framleiðslu á fisklýsi.

Formlegt áminningarbréf er fyrsta skrefið í samningsbrotaferli gegn EES EFTA-ríki. Ísland hefur nú tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ESA ákveður hvort fara skuli lengra með málið  

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 361,49 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg
24.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 2.965 kg
Skarkoli 1.097 kg
Þorskur 668 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 11 kg
Rauðmagi 6 kg
Þykkvalúra 4 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 4.810 kg
24.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 5.775 kg
Þorskur 519 kg
Skarkoli 177 kg
Steinbítur 78 kg
Samtals 6.549 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 361,49 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 866 kg
Ufsi 71 kg
Þorskur 36 kg
Samtals 973 kg
24.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 2.965 kg
Skarkoli 1.097 kg
Þorskur 668 kg
Ýsa 57 kg
Steinbítur 11 kg
Rauðmagi 6 kg
Þykkvalúra 4 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 4.810 kg
24.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 5.775 kg
Þorskur 519 kg
Skarkoli 177 kg
Steinbítur 78 kg
Samtals 6.549 kg

Skoða allar landanir »