Ætla að sigla Óðni til Grindavíkur

Óðinn hefur legið við bryggju sem hluti af Sjóminjasafninu.
Óðinn hefur legið við bryggju sem hluti af Sjóminjasafninu. mbl.is/sisi

Til stendur að sigla varðskipinu Óðni til Grindavíkur um sjómannadagshelgina fáist staðfesting á haffærni skipsins í tæka tíð.

Almenningi verður þá boðið að skoða skipið sem ekki hefur siglt í langan tíma utan stutta prufusiglingu árið 2020. Óðinn hefur legið við bryggju sem hluti af Sjóminjasafninu.

„Hópur átta vélstjóra og tveggja loftskeytamanna hefur unnið að þessu síðustu tvö árin. Sumir hverjir hafa unnið að því frá 2014 eða 2015 að gera skipið haffært og fá á það haffærniskírteini. Í september 2020 var gefin út reglugerð um siglandi safnskip að okkar frumkvæði. Var það grunnurinn að því að Samgöngustofa gat unnið að því að taka skipið út og gert kröfur um endurbætur eftir ákveðnu kerfi. Við höfum unnið að því og vonumst eftir því að fá haffærniskírteini fyrir lok mánaðarins. Ef svo verður þá munum við sigla til Grindavíkur 11. júní,“ segir Egill Þórðarson loftskeytamaður sem er formaður haffærnisnefndar.

Með honum í nefndinni eru skipherrann Magni Óskarsson, yfirvélstjórinn Ingólfur Kristmundsson og tæknistjórinn Kristinn Halldórsson.

Hollvinasamtök varðskipsins Óðins voru stofnuð árið 2008. Ríkið afhenti samtökunum skipið og var það tekið af skipaskrá. Árið 2018 var tekin ákvörðun að sigla skipinu á ný.

„Þótt ég hafi ekki samlagningu úr stimpilklukku þá tel ég að vinnustundirnar sem við höfum lagt í þetta í sjálfboðavinnu séu ekki undir 15 þúsund. Ég var svolítið hissa þegar ég fór að taka þetta saman en ég hef reyndar verið í þessu á hverjum degi í tvö ár,“ segir Egill. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »