Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson lagði frá bryggju á mánudag og hélt í árlegan vorleiðangur Hafrannsóknastofnunar og er hann liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu í hafinu umhverfis Ísland.
Í leiðangrinum er ástand kannað á föstum sniðum út frá landinu, en auk þess eru gerðar mælingar með síritandi mælitækjum á siglingaleið skipsins. Þá er magn og útbreiðsla ljósátu mæld með bergmálstækni og ljósátusýni skoðuð.
Fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar að ársferðisrannsóknir á þessu sviði hafa farið fram í kringum maí og júní í um 60 ár.
Sýnum verður einnig safnað fyrir Geislavarnir ríkisins vegna vöktunar á magni geislavirkra efna í sjó. Tekin verða upp hlustunardufl djúpt út af Langanesi og Krossanesi vegna rannsóknar á atferli andanefja og annarra hvala en það verkefni er á vegum vísindamanna við Háskóla Íslands.
Jafnframt eru tekin sýni á völdum stöðum til greininga á erfðarefni svifþörunga í vatnsbolnum og setkjarnar sóttir frá botninum og er verkefnið hluti rannsóknasamstarfs Kaupmannahafnarháskóla og íslenska ríkisins sem efnt var til, til heiðurs Margréti Þórhildi drottningu Dana og Vigdísi Finnbogadóttur forseta.
Hitt rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson, er staddur djúpt austur af landinu, en skipið er að safna upplýsingar um magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og annarra uppsjávartegunda.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.4.24 | 436,74 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.4.24 | 566,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.4.24 | 211,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.4.24 | 118,02 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.4.24 | 168,62 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.4.24 | 205,91 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.4.24 | 232,79 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 182 kg |
Samtals | 182 kg |
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 137 kg |
Samtals | 137 kg |
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 60 kg |
Samtals | 60 kg |
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 50.964 kg |
Ýsa | 14.544 kg |
Samtals | 65.508 kg |
25.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 209 kg |
Samtals | 209 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.4.24 | 436,74 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.4.24 | 566,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.4.24 | 211,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.4.24 | 118,02 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.4.24 | 168,62 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.4.24 | 205,91 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.4.24 | 232,79 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 182 kg |
Samtals | 182 kg |
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 137 kg |
Samtals | 137 kg |
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 60 kg |
Samtals | 60 kg |
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 50.964 kg |
Ýsa | 14.544 kg |
Samtals | 65.508 kg |
25.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 209 kg |
Samtals | 209 kg |