Alls hafa um 135 þúsund tonn af loðnu og 65 þúsund tonn af kolmunna ratað í fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði það sem af er ári. Ekki hefur álíka afli verið unninn í verksmiðjunum á fyrstu fimm mánuðum ársins síðan 2015, þegar verksmiðjurnar voru þrjár. Ákveðið var að loka Helguvíkurverksmiðjunni árið 2019.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu á vef útgerðarinnar. Þar segir að rúm 200 þúsund tonn af hráefni skiptist þannig milli verksmiðja að í Neskaupstað hafi verið tekið við um 108 þúsund tonnum og um 93 þúsund tonnum á Seyðisfirði.
Mikil eftirspurn er bæði eftir mjöli og lýsi og verð hátt, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Vel hefur gengið að losa afurðirnar og hafa þær verið fluttar úr landi jafnt og þétt. Megnið af afurðunum er selt til laxeldisfyrirtækja og eru Noregur og Skotland helstu viðskiptalöndin.“
Haft er eftir Hafþóri Eiríkssyni, verksmiðjustjóra í Neskaupstað, og Eggert Ólafi Einarssyni, verksmiðjustjóra á Seyðisfirði, að vinnslan hafi gengið vel á árinu að undanskildum síðustu dögum kolmunnavertíðar. Þá var fiskurinn smærri og fullur af átu. Þá segir að „skipin hafi komið með aflann vel kældan að landi og auki það gæði hráefnisins til mikilla muna og auðveldi vinnsluna. Verksmiðjustjórarnir leggi áherslu á að það sé ekki síst góðum starfsmönnum að þakka hve vel hefur gengið.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.10.23 | 557,22 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.10.23 | 370,72 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.10.23 | 285,96 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.10.23 | 262,07 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.10.23 | 245,14 kr/kg |
Ufsi, slægður | 2.10.23 | 277,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 2.10.23 | 337,70 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.10.23 | 208,05 kr/kg |
2.10.23 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 285 kg |
Keila | 113 kg |
Ýsa | 44 kg |
Steinbítur | 24 kg |
Ufsi | 20 kg |
Samtals | 486 kg |
2.10.23 Dúddi Gísla GK 48 Lína | |
---|---|
Ýsa | 3.063 kg |
Þorskur | 2.004 kg |
Steinbítur | 40 kg |
Samtals | 5.107 kg |
2.10.23 Bergur VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 7.489 kg |
Ýsa | 4.260 kg |
Ufsi | 811 kg |
Karfi | 668 kg |
Samtals | 13.228 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 2.10.23 | 557,22 kr/kg |
Þorskur, slægður | 2.10.23 | 370,72 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 2.10.23 | 285,96 kr/kg |
Ýsa, slægð | 2.10.23 | 262,07 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 2.10.23 | 245,14 kr/kg |
Ufsi, slægður | 2.10.23 | 277,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 2.10.23 | 337,70 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.10.23 | 208,05 kr/kg |
2.10.23 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 285 kg |
Keila | 113 kg |
Ýsa | 44 kg |
Steinbítur | 24 kg |
Ufsi | 20 kg |
Samtals | 486 kg |
2.10.23 Dúddi Gísla GK 48 Lína | |
---|---|
Ýsa | 3.063 kg |
Þorskur | 2.004 kg |
Steinbítur | 40 kg |
Samtals | 5.107 kg |
2.10.23 Bergur VE 44 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 7.489 kg |
Ýsa | 4.260 kg |
Ufsi | 811 kg |
Karfi | 668 kg |
Samtals | 13.228 kg |