Gísli heiðraður sem framúrskarandi skipstjóri

Gísli jónsson, t.h., var heiðraður í Gerðarsafni í gærkvöldi.
Gísli jónsson, t.h., var heiðraður í Gerðarsafni í gærkvöldi. Ljósmynd/IceFish

Gísli V. Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni GK-7, var í gærkvöldi heiðraður sem framúrskarandi skipstjóri við verðlaunaafhendingu Íslensku sjávarútvegssýningarinnar í Gerðarsafni í gærkvöldi.

Gísli lauk á síðasta ári sini síðustu sjóferð eftir að hafa stundað sjómennsku í meira en hálfa öld. Hann hafði þá verið til sjós frá 1966, en ferillinn byrjaði á bátum sem gerðir voru frá heimahögunum á Stokkseyri. Seinna var hann á bátum austur á landi. Bjó svo alls þrjátíu ár í Þorlákshöfn og reri þaðan; skipstjóri frá árinu 1973.

Árið 1996 réð hann sig síðan til Vísis hf. í Grindavík og munstraðist svo þegar fram liðu stundir á bátinn Pál Jónsson GK, hinn fyrri. Þegar nýr Páll Jónsson kom til landsins 2020 tók Gísli til starfa sem skipstjóri á honum fram að starfslokum.

„Þegar einu verkefni lýkur set ég punktinn og sný mér að einhverju öðru. Alls 55 ár til sjós og 48 ár sem skipstjóri; þetta er orðið ágætt. Ætla að leggjast í ferðalög og njóta lífsins; heilsan er góð og lífskrafturinn enn til staðar. Fram undan eru skemmtilegir tímar,“ sagði Gísli um starfslokin í viðtali við Morgunblaðið í fyrra.

Verðlaunin í ár eru styrkt af Vónin, Bureau Veritas og Morgunblaðinu og voru afhent við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni í Kópavogi á fyrsta degi sjávarútvegssýningarinnar í gær, en hún er haldin í Fífunni og lýkur á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »