Síldarvinnslan kaupir þriðjungshlut í Arctic Fish

Síldarvinnslan ehf. kaupir rúmlega þriðjungshlut í Arctic Fis Holding AS.
Síldarvinnslan ehf. kaupir rúmlega þriðjungshlut í Arctic Fis Holding AS. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Síldarvinnslan hf. hefur keypt 34,2% hlut í norska laxeldisfyrirtækinu Arctic Fish Holding AS. Gerðu Síldarvinnslan og Bremesco Holding Limited samkomulag ásamt hópi hluthafa. Kaupverðið var rúmur einn milljarður norskra króna, eða sem nemur um 13,7 milljörðum íslenskra króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarvinnslunni.

Leiðandi laxeldisfyrirtæki hérlendis

Arctic Fish Holding er skráð í Euronext Growth Market í Osló og á 100% hlutafjár í Arctic Fish ehf. en það félag rekur eldisstöðvar á Vestfjörðum og er þar af leiðandi mjög virkt af þeim laxeldisfyrirtækjum sem eru hér á landi. 

„Laxeldi er ört vaxandi atvinnugrein sem við höfum fylgst með á undanförnum árum. Aukið fjármagn og þekking hefur komið inn í greinina á síðustu árum og við teljum vera mikil tækifæri til staðar,“ er haft eftir Gunnþóri Ingvasyni, forstjóra Síldarvinnslunnar, í tilkynningu.

„Við kaupum rúmlega þriðjungshlut í Arctic Fish Holding AS, sem er í meirihlutaeigu norsks fiskeldisfyrirtækis þar sem er mikil þekking og reynsla í greininni. Við fögnum því að fá tækifæri til að vinna með þeim við eflingu félagsins.

Félagið hefur metnaðarfull áform og hefur verið í miklum fjárfestinga- og uppbyggingarfasa á síðustu árum. Við sjáum tækifæri í auknu samstarfi fiskeldisfyrirtækja á svæðinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 50.964 kg
Ýsa 14.544 kg
Samtals 65.508 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg
25.4.24 Bylgja VE 75 Botnvarpa
Þorskur 50.964 kg
Ýsa 14.544 kg
Samtals 65.508 kg

Skoða allar landanir »