Hefur ekki sömu áhyggjur og Katrín

Bjarni hefur ekki miklar áhyggjur af sölunni.
Bjarni hefur ekki miklar áhyggjur af sölunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur ekki miklar áhyggjur af kaupum Síldarvinnslunnar hf. á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu Vísi. Telur hann ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af byggðaröskun, það tilheyri að mestu leyti fortíðinni.

Þetta kom fram í máli ráðherrans í samtali við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði við mbl.is í morgun að hún hefði áhyggjur af samþjöppun í geiranum og byggðaröskun vegna sölunnar.

Stærri hákarlar erlendis

Spurður hvort hann hefði áhyggjur af því að kvótinn væri nú að safnast á hendur örfárra sagði Bjarni:

„Við erum með reglur um þau mál og svona viðskipti fara bara í skoðun samkvæmt þeim reglum. Ég hef enga sérstaka ástæðu til að ætla að það sé verið að fara á svig við þær reglur í þessum viðskiptum.

Það koma bæði til sögunnar samkeppnisleg sjónarmið en líka þessar reglur sem varða það hversu miklar heildarheimildir séu á einni hendi. Við þurfum að hafa í huga að útgerðarfyrirtækin eru meðal annars að keppa á alþjóðlegum mörkuðum og þar eru miklu stærri hákarlar en það félag sem hérna á undir.“

Engin merki um byggðaröskun

Hefur þú áhyggjur af byggðaröskun?

„Mér finnst umræðan um byggðaröskun í sjálfu sér vera ómur af því sem að gerðist í fortíðinni. Þar að segja eftir að framsalið var gefið frjálst og aflaheimildir tóku að safnast á færri hendur og við þurftum að fækka í fiskiskipaflotanum þá varð víða mikil byggðaröskun, en þetta er hluti af liðnum tíma að mestu leyti.

Í þessu tiltekna máli get ég vel skilið að það vakni upp einhverjar slíkar tilfinningar en ég sé engin merki um að það sé ástæða til að hafa miklar áhyggjur af því hér.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 399,61 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 468,03 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 251,08 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,08 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.4.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 25.303 kg
Ufsi 15.260 kg
Samtals 40.563 kg
15.4.24 Heimaey VE 1 Flotvarpa
Kolmunni 1.922.770 kg
Samtals 1.922.770 kg
15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Steinbítur 12.923 kg
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 14.936 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 399,61 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 468,03 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 251,08 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,08 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.4.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 25.303 kg
Ufsi 15.260 kg
Samtals 40.563 kg
15.4.24 Heimaey VE 1 Flotvarpa
Kolmunni 1.922.770 kg
Samtals 1.922.770 kg
15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Steinbítur 12.923 kg
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 14.936 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg

Skoða allar landanir »