Lokun lögsögu ástæða uppsagna?

Sólborg RE var sérstaklega keypt af Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. til …
Sólborg RE var sérstaklega keypt af Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. til að sinna veiðum í Barentshafi. Nú leitar félagið að öðru skipi. mbl.is/sis

Vakið hefur töluverða athygli að Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hafi ákveðið að losa sig við Sólborgu RE, þar sem innan við ár er síðan félagið festi kaup á skipinu.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag.

Við kaupin var sagt frá áformum um að breyta og endurnýja vinnsludekk skipsins með hátæknibúnaði í fremsta flokki. Heildarfjárfestingin var áætluð um þrír milljarðar króna.

ÚR keypti skipið af Arctic Prime Fisheries á Grænlandi sumarið 2021. Það þótti mikill kostur að skipið væri í efsta ísklassa sem fiskiskip eru byggð fyrir, enda var tilgangurinn með kaupunum meðal annars að eignast skip sem myndi stunda veiðar í Barentshafi, sérstaklega á ufsa og karfa. Alls voru 48 ráðnir á Sólborgu og var þeim skipt í tvær 24 manna áhafnir.

Þeim hefur öllum verið sagt upp en Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri ÚR, sagði við Morgunblaðið í gær að nú sé verið að skoða kaup á öðru skipi.

Lokuð lögsaga

Ekki er ljóst nákvæmlega hver ástæðan er fyrir því að skoða kaup á nýju skipi í stað Sólborgar en reynslumikill skipstjóri, sem rætt hefur verið við, segir útgerðir sem stunda veiðar í Barentshafi hafi þurft að endurskipuleggja veiðarnar að undanförnu þar sem dregið hefur verulega úr aflaheimildum í Barentshafi. Í fyrsta lagi hefur þorskkvóti í Barentshafi verið skorinn niður um ríflega 20% tvö ár í röð á grundvelli ráðgjafar vísindamanna hjá Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) og hefur einnig orðið niðurskurður í ýsukvóta. Vonir, um að auknar heimildir í ufsa myndu vega á móti þessari þróun, hafa orðið að engu, þar sem lokað hefur verið á stóran hluta Barentshafsveiðanna sem eiga sér stað í rússneskri lögsögu.

Sólborg, sem átti að nýta aflaheimildir í Barentshafi, sat því í vetur uppi með mun færri verkefni en áætlað var og hefur aðallega landað lúðu í vor og í sumar. Eftir því sem blaðamaður kemst næst, mun áhöfnin starfa áfram þar til endanleg ákvörðun hefur verið tekin um hvernig skuli leysa úr stöðunni.

Uppsjávarskip?

Ekki liggur fyrir hvers konar skipi ÚR leitar að en á Sólborgu voru skráðar þó nokkrar heimildir í loðnu þegar Brim fór yfir kvótaþakið í vetur. Frystitogarinn veiðir þó ekki uppsjávartegundir og hafa heyrst vangaveltur um það hvort ÚR hafi áhuga á að eignast uppsjávarskip.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.9.23 537,86 kr/kg
Þorskur, slægður 29.9.23 668,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.9.23 307,20 kr/kg
Ýsa, slægð 29.9.23 224,30 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.9.23 248,75 kr/kg
Ufsi, slægður 29.9.23 228,67 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 29.9.23 275,36 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.9.23 211,74 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.9.23 Særif SH 25 Lína
Langa 3.690 kg
Þorskur 910 kg
Keila 347 kg
Ýsa 327 kg
Blálanga 187 kg
Ufsi 164 kg
Karfi 158 kg
Steinbítur 48 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 5.834 kg
29.9.23 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 3.118 kg
Þorskur 1.443 kg
Skarkoli 436 kg
Steinbítur 279 kg
Samtals 5.276 kg
29.9.23 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 501 kg
Þorskur 384 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 81 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 1.140 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.9.23 537,86 kr/kg
Þorskur, slægður 29.9.23 668,40 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.9.23 307,20 kr/kg
Ýsa, slægð 29.9.23 224,30 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.9.23 248,75 kr/kg
Ufsi, slægður 29.9.23 228,67 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 29.9.23 275,36 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.9.23 211,74 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.9.23 Særif SH 25 Lína
Langa 3.690 kg
Þorskur 910 kg
Keila 347 kg
Ýsa 327 kg
Blálanga 187 kg
Ufsi 164 kg
Karfi 158 kg
Steinbítur 48 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 5.834 kg
29.9.23 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 3.118 kg
Þorskur 1.443 kg
Skarkoli 436 kg
Steinbítur 279 kg
Samtals 5.276 kg
29.9.23 Sandfell SU 75 Lína
Ýsa 501 kg
Þorskur 384 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 81 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 1.140 kg

Skoða allar landanir »