Sjö mánuði að vinna úr engu um túnfiskveiðar

Matvælaráðuneytið hóf úrvinnslu engra umsagna um túnfiskveiðar þann 18. janúar …
Matvælaráðuneytið hóf úrvinnslu engra umsagna um túnfiskveiðar þann 18. janúar og birtu niðurstöðurnar 8. ágúst. mbl/Arnþór Birkisson

Matvælaráðuneytið var sjö mánuði að vinna úr umsögnum um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða í tengslum við veiðar á bláuggatúnfiski. Engar umsagnir bárust vegna málsins og birtust niðurstöður tveimur mánuðum eftir að það var samþykkt á Alþingi.

Þann fimmta janúar síðastliðinn var birt í samráðsgátt stjórnvalda kynning á áformum um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem ætlað var að skapa bættar forsendur þess að íslensk skip gætu stundað túnfiskveiðar. Lokað var fyrir umsagnir 18. janúar og hófst þá úrvinnsla umsagna, að því er fram kemur í skráningu samráðsgáttarinnar. Var þá fjallað um að engar umsagnir hefðu borist.

Niðurstöður samráðsins voru hins vegar birtar 8. ágúst og vakti það athygli fyrir þær sakir að frumvarp er snýr að fyrrnefndum breytingum var samþykkt á Alþingi 15. júní, eða tæplega tveimur mánuðum fyrr.

Ekki einstakt

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem atvik af þessum toga eiga sér stað í skráningu ráðuneyta í samráðsgáttinni. Fjallaði Morgunblaðið um það fyrir um ári að á þriðja hundrað mála væru komin úr samráði en biðu þess að niðurstöður yrðu birtar, þar á meðal 9 mál frá árinu 2018. Í fjölda tilfella hefðu lög og reglugerðir tekið gildi án þess að niðurstöður samráðsins hefðu verið birtar. Í kjölfar umfjöllunarinnar voru 79 mál afgreidd á fimm dögum.

Alls eru nú 170 mál þar sem samráði er lokið og bíða nú þess að niðurstöður verða birtar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.4.24 478,32 kr/kg
Þorskur, slægður 22.4.24 474,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.4.24 203,49 kr/kg
Ýsa, slægð 22.4.24 130,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.4.24 194,31 kr/kg
Ufsi, slægður 22.4.24 233,45 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 22.4.24 189,26 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grásleppa 665 kg
Samtals 665 kg
23.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.613 kg
Þorskur 293 kg
Skarkoli 111 kg
Steinbítur 10 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.030 kg
23.4.24 Brynjar BA 338 Handfæri
Ufsi 52 kg
Samtals 52 kg
22.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.920 kg
Þorskur 3.967 kg
Skarkoli 603 kg
Hlýri 32 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 10.547 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.4.24 478,32 kr/kg
Þorskur, slægður 22.4.24 474,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.4.24 203,49 kr/kg
Ýsa, slægð 22.4.24 130,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.4.24 194,31 kr/kg
Ufsi, slægður 22.4.24 233,45 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 22.4.24 189,26 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grásleppa 665 kg
Samtals 665 kg
23.4.24 Fanney EA 82 Grásleppunet
Grásleppa 1.613 kg
Þorskur 293 kg
Skarkoli 111 kg
Steinbítur 10 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.030 kg
23.4.24 Brynjar BA 338 Handfæri
Ufsi 52 kg
Samtals 52 kg
22.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.920 kg
Þorskur 3.967 kg
Skarkoli 603 kg
Hlýri 32 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 10.547 kg

Skoða allar landanir »