Séríslenskar reglur stöðva rekstur björgunarbáts

Kobbi Láka fæst ekki skráður hér á landi vegna krafna …
Kobbi Láka fæst ekki skráður hér á landi vegna krafna um sjálfréttingu. Slík krafa er hvergi annar staðar á Norðurlöndunum gerð til björgunarbáta. Ljósmynd/Björgunarsveitin Ernir

Nýr Kobbi Láka, sem keyptur var frá Noregi í sumar, hefur enn ekki fengið skráningu hér á landi vegna þeirra séríslenskra krafna sem yfirvöld gera um að björgunarbátar sem notaðir eru á úthafi séu sjálfréttandi. Heimilt hefði þó verið að nota bátinn við strendur Íslands hefði hann áfram verið skráður í Noregi, að því er fram kemur í yfirlýsingu björgunarsveitarinnar Ernis á Facebook-síðu hennar.

Það er því ekki útlit fyrir að báturinn geti þjónustað sjófarendur í bráð en í yfirlýsingunni segir: „Við trúum því þó að fljótlega sjái menn að sér og heimili okkur að skrá bátinn á Íslenska skipaskrá, enda eins og áður segir ekkert að vanbúnaði að hafa hann á öðrum skipaskrám. Við biðjumst um leið afsökunar á þessu til sjófarenda á svæðinu, enda er það innileg von okkar að við eigum búnað til að koma til aðstoðar þegar að reynir á.“

Forsaga málsins er að fyrirrennari nýs Kobba Láka sökk í höfninni á Bolungarvík í óveðri sem gekk yfir landið í febrúar á þessu ári. Skemmdir urðu það miklar á björgunarbátunum að ekki var unnt að nýta hann áfram. Í vor var síðan fest kaup á norskum björgunarbát sem afhentur var Erni 18. júlí síðastliðinn.

Krafan hvergi á Norðurlöndum

Sveitinni hefði verið heimilt að nota bátinn hér á landi á norskri skráningu til ársins 2024, en eins og eðlilegt er þegar bátar eru keyptir til landsins eru þeir skráðir hér á landi. Báturinn hafði verið notaður óslitið í Noregi frá 2002 og var því ekki grunur um að eitthvað kynni að koma í veg fyrir rekstur hans hér á landi.

Andstætt hinum Norðurlöndunum gera íslensk yfirvöld kröfu um að björgunarbátar séu sjálfréttandi, ekki heldur í Noregi þar sem björgunarsveitin segir aðstæður björgunar á sjó séu svipaðar og við Ísland.

„Þrátt fyrir að starfsmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar og skipaverkfræðingar ásamt okkur hafi lagt ómældan tíma í að reyna að skaffa þau aukagögn sem gerð var krafa um eftir að báturinn var kominn til landsins. Þó svo að nýleg stöðuleikagögn síðan 2017 sýni mjög góðan stöðuleika, telst það ekki nægjanlegt til skráningar hér,“ segir í yfirlýsingunni.

Nú sé unnið að því að fá undanþágu frá innviðaráðuneytinu þannig að hægt verði að taka bátinn í notkun, en sú vinna tefur skráningarferlið.

Kalla eftir endurskoðun reglna

„Ljóst er að mikil þörf er á að stofnanakerfið sem stendur að skráningu skipa á Íslandi þarfnast endurskoðunar sem og reglugerð um björgunarbáta gerða út frá landi (nr. 1120/2007). Staðan er sú að í góðum samböndum við systursamtök björgunarsveita víða í Evrópu eiga sveitir eins og okkar oft tækifæri á góðum notuðum bátum eins og nýja Kobba Láka,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá sé „ótrúlegt“ að ekki getað skráð björgunarbátinn sem fengist hefur fyrir stuðning almennings í gegnum fjárstyrki, kaup á neyðarköllum og flugeldum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,44 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 183,92 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,44 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 183,92 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »