Erlendir vísindmenn rannsökuðu íslenska svampa

F.h. Celso Domingos frá Portugal, Pilar Rios frá Spáni, Gustavo …
F.h. Celso Domingos frá Portugal, Pilar Rios frá Spáni, Gustavo Guarin frá Kanada, Christine Morrow frá Norður-Írlandi, Guðmundur Guðmundsson, Javier Cristobo frá Spáni, Steinunn Hilma Ólafsdóttir, Joana Xavier frá Noregi, Paco Cardenas frá Svíþjóð og Laure de Montety. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Fyrr í þessum mánuði unnu sjö erlendir sérfræðingar í svampdýrum ásamt starfsmönnum frá Náttúrufræðistofnun Íslands og Hafrannsóknastofnun að rannsókn á svampdýrum úr hafinu umhverfis Íslands í Þekkingarsetrinu í Sandgerði.

Fram kemur í færslu á vef Hafrannsóknastofnunar að markmið samstarfsins sé að auka þekkingu á tegundasamsetningu svampdýra á Íslandsmiðum og í framhaldinu að kortleggja útbreiðslu einstakra tegunda.

Erlendu sérfræðingarnir voru frá Portúgal, Kanada, Norður-Írlandi, Spáni, Noregi og Svíþjóð og var unnið dagana 8. til 19. september.

„Árin 1991 – 2004 var safnað á vegum botndýraverkefnisins (BIOICE), miklu magni af svampdýrum á 579 stöðvum víðsvegar innan 200 mílna efnahagslögsögu Íslands. Lítill hluti þessa efniviðar hefur verið rannsakaður til hlítar. Þó er vitað um 193 tegundir svampdýra á Íslandsmiðum, en vafalítið eru þær umtalsvert fleiri. Sýnasafnið úr botndýraverkefninu gefur færi á að kortleggja útbreiðslu svampdýrategunda og þar með fylgni við ýmsa umhverfisþætti, svo sem sjávardýpi, hitastig, seltu, botnstrauma og togveiðiálag,“ segir í færslunni.

Eintak af svampdýrategundinni Chondrocladia grandis, um 15 cm á hæð. …
Eintak af svampdýrategundinni Chondrocladia grandis, um 15 cm á hæð. Tegundin lifir ránlífi sem veiðir smærri dýr sér til matar með því að festa þau við límkennt yfirborðið sem einnig er alsett króknálum. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Helsta ógnin togveiðar

Þá segir að stórvaxnir svampar þekja stór svæði á hafsbotni sem mynda sérstaka vistgerð sem fóstra tegundarík dýrasamfélög sem gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfi sjávar.

„Sennilega er tilveru stórsvampa einna mesta ógnað af botnskarki með veiðarfærum. Rannsóknir á lífríki á malarbotni og hörðum botni sýna skerta tegundafjölbreytni og að lítið er af stórsvömpum á togslóð, samanborið við nálæg svæði sem eru laus við botnskark. Viðkvæmastir eru stórvaxnir og stífir svampar, sem rifna upp eða brotna við að lenda í veiðarfærum,“ segir í færslunni.

Vakin er athygli á að í gögnum Hafrannsóknastofnunar séu dæmi um stórsvampa í afla hafi verið allt að 15 til 20 tonn. Þá geta togveiðarfæri þyrlað upp gruggi sem skerðir lífslíkur svampa. „Næringarnám þeirra byggist á því að dæla sjó í gegnum skrokkinn eftir örfínum rásum og sía smágerðar fæðuagnir úr sjónum. Fíngert grugg getur hæglega stíflað síunarkerfi svampa svo þeir þrífast illa eða drepast. Lítið er vitað hvort eða hversu langan tíma það tekur stórsvampa vaxa upp í fyrri stærð, en líklegast tekur það áratugi eða aldir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »