„Ekki óalgengt að veiðarfæri festist í kóral“

Petrún Sigurðardóttir, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir hafa verið áhugavert hve …
Petrún Sigurðardóttir, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir hafa verið áhugavert hve lítið fannst af almennu rusli á hafsbotni. Samsett mynd

„Það sem mér fannst áhugaverðast var hversu mikið af línum við fundum á Reykjaneshrygg og hversu lítið af almennu rusli eins og plasti, dósum og þannig háttar fannst á þessum svæðum sem við skoðuðum,“ segir Petrún Sigurðardóttir, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, sem hefur unnið að samantekt á skráningu rusls á hafsbotni umhverfis Ísland.

Skýrsla um rusl á hafsbotni var birt á vef Hafrannsóknastofnunar á dögunum og mun Petrún flytja erindir „Rusl á hafsbotni við Ísland: Samantekt á skráningu rusls við kortlagningu búsvæða á hafsbotni 2004-2019“ í höfuðstöðvun Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði klukkan 12:30 á morgun.

„Í rauninni er ekki skrítið að við fundum svona mikið af veiðarfærum þar sem svæðin sem við skoðuðum voru einkum fiskveiðisvæði þar sem sjómenn höfðu gefið upplýsingar um að kóral gæti verið að finna. Það er ekki óalgengt að veiðarfæri festist í kóral og grjóti, enda fundum við mikið af ummerkjum um það,“ útskýrir hún.

Enn vantar mikið af upplýsingum

Samantektin vakti töluverða athygli meðal annars vegna þess að uppreiknaður meðalþéttleiki rusls væri hærri umhverfis Íslands en til að mynda við Noreg eða Evrópu. Spurð hvort draga megi einhverjar ályktanir á grundvelli þessa, segir Petrún svo ekki vera.

„Vegna þess hversu lítið svæði við mynduðum og það að þetta voru eingöngu fiskveiðisvæði þá er erfitt að draga einhverjar ályktanir af því eins og er. Við myndum helst vilja mynda meira og skoða fleiri svæði áður en við getum sagt almennilega til um það magn rusl sem er hér á hafsbotni í kringum landið. Nú höfum við allavega einhverja hugmynd um dreifingu og magn veiðarfærarusls á hafsbotni en það vantar líka frekari upplýsingar um almennt rusl þar sem það er líklega í einhverju magni nær byggðum, t.d. í Faxaflóa,“ segir hún.

 Erindi Petrúnar verður streymt á YouTube rás Hafrannsóknastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »