Margrét Kristín Pétursdóttir kosin formaður KÍS

Félag kvenna í sjávarútvegi heimsótti frystihús Samherja á mánudag, en …
Félag kvenna í sjávarútvegi heimsótti frystihús Samherja á mánudag, en sama dag fór fra aðalfundur félagsins. Nýr fromaður er Margrét Kristín Pétursdóttir. Ljósmynd/Samherji

Margrét Kristín Pétursdóttir, forstöðumaður gæðamála hjá Vísi í Grindavík, var kjörin nýr formaður Félags kvenna í sjávarútvegi, KÍS, á aðalfundi félagsins sem fram fór í húsakynnum Háskólans á Akureyri á mánudag.

Margrét tekur við formennsku af Agnesi Guðmundsdóttur, sölustjóra Icelandic Asia, en hún hefur gegnt embættinu undanfarin fjögur ár.

Tilgangur félagsins er að styrkja og efla konur sem starfa í sjávarútvegi og haftengdri starfsemi. Í því skyni stendur félagið fyrir viðburðum og fræðslu með það að markmiði að efla samstöðu og samstarf kvenna innan sjávarútvegs og haftengdra greina.

Agnes Guðmundsdóttir, fráfarandi formaður KÍS, og Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, gæðastjóri …
Agnes Guðmundsdóttir, fráfarandi formaður KÍS, og Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, gæðastjóri ÚA. Ljósmynd/Samherji

Samhliða aðalfundi heimsóttu um sextíu konur í félaginu frystihús Samherja á Dalvík.

„Þessi heimsókn í fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík var einmitt liður í þeirri viðleitni að efla samstöðuna meðal kvenna í sjávarútvegi og tengja betur landsbyggðina. Við vorum allar sammála um að þetta nýja fiskvinnsluhús væri til fyrirmyndar, bæði hvað varðar hönnun, aðstöðu starfsfólks og alla hátæknina sem er svo áberandi hvert sem litið er. Húsið er glæsilegur vitnisburður um þá staðreynd að við Íslendingar stöndum afar framarlega í fiskvinnslu á heimsvísu. Íslenskt hugvit er sérlega áberandi í húsinu, sem segir líka sína sögu,“ er haft eftir Agnesi á vef Samherja.

Ljósmynd/Samherji
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »